Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Nýjar ráðleggingar um mataræði fyrir hrumt eða veikt eldra fólk

10. desember 2018

Embætti landlæknis birtir hér í samstarfi við Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) nýjar ráðleggingar um mataræði fyrir hrumt eða veikt eldra fólk ætlað fagfólki og öðrum umönnunaraðilum.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis birtir hér í samstarfi við Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) nýjar ráðleggingar um mataræði fyrir hrumt eða veikt eldra fólk.

Ráðleggingunum er ætlað að auðvelda þeim störfin sem útbúa mat fyrir hrumt eða veikt eldra fólk eða sinna umönnun þeirra. Við gerð þessara ráðlegginga var stuðst við ráðleggingar frá European Society for Clinical Nutrition and Metabolism (ESPEN), norrænar næringarráðleggingar og ráðleggingar um mataræði fyrir hruma eða veika frá hinum Norðurlöndunum.

Fæði, sem eldra fólki stendur til boða á hjúkrunarheimilum, rétt eins og í heimahúsum, hefur áhrif á heilsu þeirra og líðan. Matarlyst minnkar oft með hækkandi aldri en þörf fyrir vítamín og steinefni er nánast óbreytt og próteinþörfin aukin. Því þurfa öll næringarefni að vera til staðar í minni matarskömmtum. Það gilda því aðrar ráðleggingar um mataræði fyrir hrumt eða veikt eldra fólk heldur en þá sem frískari eru.

Til að tryggja að næringarþörf þessa hóps sé fullnægt þarf að bjóða upp á fjórar til sex næringarríkar máltíðir daglega, þar af tvær heitar máltíðir. Næringarútreikningar á matseðlum hafa sýnt að súpur og brauðmáltíðir duga ekki sem aðalmáltíð til að uppfylla prótein- og orkuþörf yfir daginn. Allt hrumt eða veikt eldra fólk ætti að fá orku- og próteinþétt fæði og eru gefin dæmi í þessum ráðleggingum um hvernig hægt er að útbúa slíkar máltíðir. Hætta á vannæringu eykst með aldrinum, því er mikilvægt að fylgjast með næringarástandi og bregðast við ef út af ber.

Einnig eru birtar upplýsingar um einkenni vannæringar hjá eldra fólki og hvað er til ráða og að lokum eru endurútgefnar ráðleggingar um mataræði fyrir eldra fólk sem er við góða heilsu sem voru fyrst birtar í júlí 2017.Ráðleggingar um mataræði fyrir hrumt eða veikt eldra fólk voru unnar af faghópi með fulltrúum frá embætti landlæknis, RHLÖ, Landspítala, Næringarstofu, Öldrunarráði Íslands, Sóltúni, Hrafnistu og Reykjavíkurborg.

Fyrirspurnum varðandi ofangreint efni er beint til Ólafar Guðnýjar Geirsdóttur, netfang: olofgg@landspitali.is, gsm: 8646064.

Elva Gísladóttir og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, næringarfræðingar, embætti landlæknis
Dr. Ólöf Guðný Geirsdóttir, dósent hjá Matvæla- og næringarfræðideild HÍ & verkefnastjóri hjá Rannsóknarstofu HÍ & LSH í öldrunarfræðum