Hvað virkar í tóbaks-, áfengis- og vímuforvörnum í skólum
1. febrúar 2019
Embætti landlæknis hefur gefið út staðreyndablað um hvað virkar í tóbaks-, áfengis- og vímuvörnum í skólum.
Embætti landlæknis hefur gefið út staðreyndablaðið Hvað virkar í tóbaks-, áfengis- og vímuvörnum í skólum? Ráðleggingarnar byggja á niðurstöðum rannsókna þar sem kemur fram að árangursríkar forvarnir leggja áherslu á gagnvirkar, sveigjanlegar og fjölbreyttar aðferðir. Hræðsluáróður og stutt erindi án eftirfylgni og undirbúnings ber að varast þar sem þau hafa lítil eða skammvinn áhrif og geta hreinlega valdið skaða. Ákjósanlegast er að fræðsla af þessu tagi sé hluti af almennu skólastarfi og að stefna skólans í þessum málum sé sýnileg.
Staðreyndablaðið er, eins og nafnið gefur til kynna, ætlað grunn- og framhaldsskólum en upplýsingarnar í því eiga einnig við foreldra, félagsmiðstöðvar og aðra sem starfa með börnum og ungmennum.
Skólar og foreldrar í lykilhlutverki
Í forvarnarfræðslu til barna og ungmenna er mikilvægt að starfsfólk skóla, sem er daglega til staðar, sinni kennslunni. Kennarar þekkja nemendur sína, geta fylgt málum eftir og nemendur geta leitað til þeirra með spurningar og vangaveltur sem kunna að vakna eftir fræðsluna. Forvarnir og heilsuefling í skólum þarf að vera heildræn og unnin í samstarfi við nemendur, foreldra og nærsamfélag.
Foreldrar eru mikilvægustu fyrirmyndir barna sinna og hefur jákvæð samvera barna og foreldra mikið forvarnargildi. Samvera af þessu tagi ýtir undir sterkari tengsl og jákvæð samskipti og eru ekki síður mikilvæg þegar komið er á unglingsaldur. Þá skiptir máli að foreldrar styðji enn við og taki virkan þátt í skólastarfi, íþróttaiðkun og tómstundanámi barna sinna og þekki vini þeirra.
Nýjar áskoranir/Taka mið af staðbundnum gögnum
Reglulega eru gerðar kannanir í skólum á heilsu og líðan nemenda. Niðurstöður þessara rannsókna sýna að við höfum náð góðum árangri á ákveðnum sviðum, m.a. í því að draga úr tóbaksreykingum og áfengisneyslu ungmenna. Þessar niðurstöður gefa einnig til kynna nýjar áskoranir sem við stöndum frammi fyrir og þurfum að bregðast við þar á meðal notkun á rafrettum. Ráðleggingarnar í staðreyndablaðinu eiga einnig við um notkun ungmenna á rafrettum. Til grundvallar forvarnar- og heilsueflingarstarfi eiga skólar að taka mið af stöðu mála í sínum skóla og mikilvægt er að þeir upplýsi sitt skólasamfélag um stöðu mála reglulega.
Vellíðan að leiðarljósi
Embætti landlæknis býður leik-, grunn- og framhaldsskólum að vinna eftir nálgun heilsueflandi skóla og taka nú þegar fjölmargir skólar þátt. Þar er áhersla lögð á vellíðan fyrir alla í skólastarfi og að innleiða grunnstoðina Heilbrigði og velferð í aðalnámskrá. Hægt er að kynna sér þessa nálgun nánar hér.