Hamingja á vinnustöðum er alvörumál!
21. febrúar 2019
Húsfyllir, eða um 400 manns mættu á morgunfund VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins á Grand Hótel þann 21. febrúar um mikilvægi þess að auka vellíðan á vinnustöðum.
Húsfyllir, eða um 400 manns mættu á morgunfund VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins á Grand Hótel þann 21. febrúar um mikilvægi þess að auka vellíðan á vinnustöðum.
Aðalfyrirlesari á morgunfundinum var Vanessa King, þekktur fyrirlesari og sérfræðingur um vellíðan, þrautseigju og hamingju á vinnustöðum, en Vanessa er stödd hér á landi til að kenna í Jákvæðri sálfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands.
Auk Vanessu ávarpaði Alma D. Möller landlæknir morgunfundinn, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir reifaði rannsóknir sínar á hamingju vinnandi fólks á Íslandi og Ingibjörg Loftsdóttir kynnti Velvirk verkefnið.
Dagskrá
Ávarp - Alma D. Möller, landlæknir
The serious business of happiness at work - Vanessa King, Action for Happiness
Hamingja vinnandi fólks á Íslandi - Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis
Er brjálað að gera? - Ingibjörg Loftsdóttir, sviðsstjóri hjá VIRK
Fundarstjóri: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands
Morgunfundurinn var haldinn á Grand Hótel 21. febrúar kl. 8.30 -10.00.
Aðgangur ókeypis en skráning þátttöku á virk.is.
Um jákvæða sálfræði (positive psychology)
Jákvæð sálfræði (positive psychology) er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum hliðum mannsins eins og styrkleikum, vellíðan og hamingju og finna leiðir til að efla líðan enn frekar. Markmið diplómanáms í jákvæðri sálfræði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands er að kynna hugmyndafræði og nálgun jákvæðrar sálfræði þannig að nemendur geti nýtt sér hana bæði í einkalífi og starfi.
Námið byggir á samþættingu rannsókna, reynslu og sannreyndum inngripum til að auka vellíðan. Námið er þverfaglegt og getur nýst öllum þeim sem vinna með mannlega hegðun, þeim sem vilja hafa áhrif á fólk og umhverfi og þeim sem vilja taka áskorun um frekari þroska og leggja sig fram um að njóta lífsins til hins ítrasta.