Fréttatilkynning vegna kórónaveirunnar COVID-19 27.02.2020
27. febrúar 2020
Á stöðufundi samhæfingarstöðvar almannavarna var í morgun farið yfir horfur varðandi kórónaveiruna COVID-19. Daglega bætast við lönd sem tilkynna um tilfelli, þar á meðal nokkur grannríkja Íslands. Vaxandi líkur eru því taldar á að veiran eigi eftir að greinast hér á landi en allra ráða er beitt til að hefta komu hennar.
Á stöðufundi samhæfingarstöðvar almannavarna var í morgun farið yfir horfur varðandi kórónaveiruna COVID-19. Daglega bætast við lönd sem tilkynna um tilfelli, þar á meðal nokkur grannríkja Íslands. Vaxandi líkur eru því taldar á að veiran eigi eftir að greinast hér á landi en allra ráða er beitt til að hefta komu hennar.
Sýkla og veirufræðideild Landspítalans hefur nú rannsakað 46 sýni, meðal annars úr einkennalausum einstaklingum. Reyndust þau öll neikvæð. Þó að veiran geti fundist hjá einkennalausum einstaklingi þá er talið ólíklegt að þeir smiti aðra, þó það geti gerst í stöku tilfellum
Neytendastofa hefur birt upplýsingar á vef sínum: Afpöntun og aflýsing pakkaferðar.
Áhættusvæði
Í gær var tilkynnt um skilgreind áhættusvæði með mikla og litla smitáhættu og er það mat óbreytt. Svæði með mikla smitáhættu eru Kína, fjögur héruð á Norður Ítalíu (Lombardía, Venetó, Emilia Rómanja og Píemonte), Suður-Kórea og Íran. Sóttvarnalæknir ráðleggur einstaklingum frá því að fara til þessara landa/svæða að nauðsynjalausu, en þeir sem koma hingað frá þessum stöðum er ráðlagt að fara í 14 daga sóttkví. Athugið að þeir sem fara um þessi svæði en dvelja ekki á þeim þurfa ekki að fara í sóttkví. Þannig þurfa þeir sem fljúga til eða frá þessum svæðum, eftir dvöl á skíðasvæðum utan þeirra, ekki að fara í sóttkví.
Svæði með litla smitáhættu
Áhættusvæði sem skilgreind hafa verið með litla smitáhættu eru önnur svæði á Ítalíu, Japan, Singapúr, Hong Kong og Tenerife (fyrir utan H10 Costa Adeje Palace hótelið). Ferðamenn sem eru nú þegar á þessum svæðum og þeir sem hafa nýlega komið þaðan eru beðnir um að huga vel að persónulegu hreinlæti og sýkingavörnum en ekki er talin nauðsyn á sérstakri sóttkví fyrir þá sem eru nýkomnir frá þessum svæðum. Einstaklingum sem koma frá svæðum með litla áhættu eru beðnir að láta vita í síma 1700 ef þeir veikjast innan 14 daga eftir brottför frá þessum svæðum.
Gagnagrunnur fyrir Íslendinga erlendis
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins opnað sérstakan gagnagrunn fyrir Íslendinga erlendis sem óska eftir að vera á skráðir hjá utanríkisráðuneytinu og upplýstir um ferðaráð vegna COVID-19 veirunnar á meðan á dvöl þeirra stendur. Í morgun höfðu yfir eitt þúsund einstaklingar verið skráðir í grunninn.
Aðgerðir á alþjóðhöfnum
Á Keflavíkurflugvelli, á Akureyri og á Seyðisfirði eru sendar upplýsingar til farþega um að tilkynna skuli veikindi í síma 1700 eða hringja í heilsugæsluna ef einstaklingar finna fyrir veikindum eftir að hafa verið á skilgreindum áhættusvæðum. Á flugvöllunum hafa viðbragðsáætlanir verið uppfærðar.
Almennt hreinlæti mikilvægt
Ferðamenn sem eru nú þegar á skilgreindum áhættusvæðum og þeir sem hafa nýlega komið þaðan eru beðnir um að huga vel að persónulegu hreinlæti og sýkingavörnum. Þær fela meðal annars í sér að þvo hendur oft og vel, hafa klút fyrir andlitinu við hnerra og hósta í olnbogabót og nota handspritt. Almenningur getur með auðveldum hætti dregið úr sýkingarhættu með því að gæta vel að persónulega hreinlæti. Handþvottur og almennt hreinlæti í kringum augu, nef og munn og það að forðast að heilsa með handabandi hefur lykilþýðingu við að forðast smit og fækka smitleiðum.
Einstaklingar sem fá einkenni frá öndunarfærum, sérstaklega með hita, skulu þeir hafa samband við Læknavaktina í síma 1700 eða sína heilsugæslu símleiðis en ekki mæta óboðaðir á sjúklingamóttökur.