Forseti Íslands afhenti verðlaun Forvarnardagsins
14. desember 2020
Verðlaunaafhending Forvarnardagsins fór fram á Bessastöðum, sl. laugardag 12. desember að viðstöddum forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni.
Verðlaunaafhending Forvarnardagsins fór fram á Bessastöðum, sl. laugardag 12. desember að viðstöddum forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni. Verðlaunahafar áttu þar góða stund með forseta og voru sóttvarnarreglur hafðar í hávegum, þar sem einungis nemendurnir og foreldrar þeirra voru viðstaddir.
Fræðsla Forvarnardagsins fer fram fyrir nemendur í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Um 360 nemendur tóku þátt að þessu sinni þar sem þau svöruðu m.a. spurningum um lykilþætti að góðu lífi og forvarnir áfengis- og vímuefnanotkunar. Þrír verðlaunahafar voru dregnir úr pottinum og hlutu þeir 50 þúsund króna inneign í versluninni 66 Norður, sem á að vera hvatning til að vera vel búin í heilsueflandi útivist.
Vinningshafar:
Sigríður Birta Skarphéðinsdóttir, Grunnskóla Fjallabyggðar, Siglufirði
Sóley Bestla Ýmisdóttir, Verzlunarskóla Íslands, Reykjavík
Ásdís Bára Eðvaldsdóttir, Heiðarskóla, Reykjanesbæ
Embætti landlæknis stendur að deginum í samstarfi við embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Skátana, Ungmennafélag Íslands, Rannsóknir og greiningu, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samfés, Heimili og skóla og Samstarfi félagasamtaka í forvörnum.
Stýrihópur Forvarnardagsins óskar þeim hjartanlega til hamingju.