Flensur og aðrar pestir - 6. vika 2020
13. febrúar 2020
Í síðustu viku var inflúensan staðfest hjá 36 einstaklingum, sem er aukning borið saman við vikurnar á undan. Þar af voru 12 með inflúensu A(H1) pdm09, 16 með inflúensu A(H3), einn með ótýpugreinda inflúensu A og sjö með inflúensu B/Victoria.
Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala og fjöldi sýna. Í síðustu viku var inflúensan staðfest hjá 36 einstaklingum, sem er aukning borið saman við vikurnar á undan. Þar af voru 12 með inflúensu A(H1) pdm09, 16 með inflúensu A(H3), einn með ótýpugreinda inflúensu A og sjö með inflúensu B/Victoria. Frá því um mánaðarmótin september – október hafa samtals 198 einstaklingar verið greindir með staðfesta inflúensu. Flestir hafa greinst á höfuðborgarsvæðinu en inflúensan hefur líka verið staðfest víða annars staðar.
Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Fjöldi þeirra sem leituðu til læknis með einkenni inflúensu í 6. viku jókst aðeins miðað við vikuna á undan en í síðustu viku (6. viku) fjölgaði einstaklingum með inflúensulík einkenni um 12% skv. upplýsingum frá heilsugæslunni og bráðamóttökum.
Innlagnir á sjúkrahús. Alls fimm einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með staðfesta inflúensu í síðustu viku, þar af voru þrír með A(H3), einn með A(H1)pdm09 og einn með B/Victoria.
Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensan eykst í löndum Evrópusambandsins, og hefur náð mikilli útbreiðslu í flestum löndum. Bæði inflúensa A(H3 og H1pdm09) og inflúensa B greinast, sjá nánar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).
Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Inflúensan færist nú í aukana, fleiri greindust með staðfesta inflúensu í síðustu viku borið saman við vikuna á undan og fjöldi með inflúensulík einkenni jókst einnig. Af þessu má sjá að Inflúensan breiðist nú út í samfélaginu.
RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Í 6. viku þessa árs voru 24 einstaklingar með staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV) sem er svipað og vikurnar á undan. Alls voru 13 greindir með Human Metapneumóveiru (hMPV), sem er örlítil aukning miðað við undanfarnar vikur. Einnig hefur töluvert greinst af öðrum öndunarfæraveirum.
Er erfitt að greina á milli nýrrar kórónaveiru (COVID-19), inflúensu og annarra öndunarfæraveira? Einkenni kórónaveirusýkinga geta verið svipuð inflúensu í upphafi sjúkdóms. Einkenni inflúensunnar koma oftast snögglega og lýsa sér með hita, hósta, hálssærindum, höfuðverk, vöðvaverkjum og almennri vanlíðan. Kórónaveiran getur snögglega valdið neðri loftvegasýkingu með lungnabólgu sem getur gert öndun erfiða, en leiðir sjaldnar til einkenna frá efri öndunarfærum eins og kvefi. Kann það að valda vandamálum við greiningu sjúkdómanna. Þess vegna er mikilvægt að fá góðar upplýsingar um ferðasögu hjá þeim sem eru með hita, hósta, vöðvaverk og almenna vanlíðan þegar slíkir einstaklingar leita til heilbrigðisþjónustunnar.
Eins og alltaf eru þeir sem fá þessi einkenni hvattir til þess að halda sig heima og minnt er á að til eru öflug lyf gegn inflúensu (Tamiflu® hylki og Relenza® innúðaðalyf) sem geta dregið úr einkennum inflúensu og flýtt bata ef þau eru tekin innan tveggja sólarhringa frá upphafi einkenna. Þessi lyf eru lyfseðilskyld. Þess má geta að þessi lyf virka ekki gegn kórónaveirunni.
Meltingarfærasýkingar. Aðeins fleiri leituðu á heilsugæsluna og á bráðamóttökur með niðurgang síðastliðna viku borið saman við meðaltal sömu viku sl. fimm ár. Í síðustu viku voru fjórir einstaklingar með staðfesta sýkingu af völdum nóróveiru. Nóróveiran er því áfram í dreifingu í samfélaginu. Í síðustu viku var einnig nokkuð um staðfestar sýkingar af völdum adenóveiru, sapóveiru, rótaveiru og astróveiru.
Sóttvarnalæknir