Ársskýrsla sóttvarna og farsóttaskýrsla 2018 með sögulegum upplýsingum
2. september 2019
Sóttvarnalæknir hefur gefið út á vef embættisins skýrslu um tilkynningarskylda smitsjúkdóma árið 2018 ásamt yfirliti um starfsemi sóttvarnalæknis á árinu
Sóttvarnalæknir hefur gefið út á vef embættisins skýrslu um tilkynningarskylda smitsjúkdóma árið 2018 ásamt yfirliti um starfsemi sóttvarnalæknis á árinu.
Í skýrslunni er fjallað um ýmsa smitsjúkdóma á Íslandi á árinu og þeir bornir saman við faraldsfræði þeirra fyrr á árum.
Í skýrslunni má einnig finna margvíslegan fróðleik um einstaka smitsjúkdóma á Íslandi áratugi aftur í tímann og þann árangur sem náðst hefur með ýmsum aðgerðum til að halda þeim í skefjum, m.a. með bólusetningum. Þá er einnig fjallað um sýklalyfjanotkun, bólusetningar og sýkingar í tengslum við veitingu heilbrigðisþjónustu.
Skýrslan er eingöngu gefin út í rafrænni útgáfu.
Lesa nánar: Ársskýrsla sóttvarna og farsóttaskýrsla 2018
Sóttvarnalæknir