Allir reikningar rafrænir frá áramótum
23. desember 2019
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ákveðið að frá og með 1. janúar 2020 skuli allir reikningar vegna kaupa ríkisins á vöru og þjónustu vera með rafrænum hætti. Pappírsreikningar sem eru útgefnir eftir 1. janúar 2020 munu verða endursendir og kallað eftir rafrænum reikningum.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ákveðið að frá og með 1. janúar 2020 skuli allir reikningar vegna kaupa ríkisins á vöru og þjónustu vera með rafrænum hætti. Pappírsreikningar sem eru útgefnir eftir 1. janúar 2020 munu verða endursendir og kallað eftir rafrænum reikningum. Reikningar skulu vera á svokölluðu XML formi og miðlað í gegnum skeytamiðlara. Ekki er tekið við PDF reikningum í gegnum tölvupóst.
Hér eru nánari upplýsingar um rafræna reikninga á vef Fjársýslu ríkisins
Ef spurningar vakna og svörin er ekki að finna á vefnum er best að hafa samband við Fjársýslu ríkisins.
Opnað verður fyrir fría skráningu á reikningum í gegnum “skúffu” á vef Fjársýslunnar.
Einnig eru aðilar byrjaðir að nota fría þjónustu með skráningu reikninga á Inexchange og skuffan.is. Mælt er með því að þessar lausnir séu skoðaðar eða þjónusta Fjársýslunnar sé nýtt.