112 dagurinn í dag
11. febrúar 2019
112-dagurinn er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að öryggismálum heimilisins. Aðstandendur dagsins fræða almenning um hvernig má draga úr hættu á slysum og öðrum áföllum á heimilum og hvernig bregðast á við slíkum atvikum.
112-dagurinn er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að öryggismálum heimilisins. Aðstandendur dagsins fræða almenning um hvernig má draga úr hættu á slysum og öðrum áföllum á heimilum og hvernig bregðast á við slíkum atvikum.
Stór hluti símtala í neyðarnúmerið 112 á rætur að rekja til slysa og annarra áfalla á heimilum fólks. Fólk verður alvarlega veikt heima eða slasast, börn komast í lyf og önnur hættuleg efni, eldur kemur upp á heimilinu, þjófar láta greipar sópa, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Sjá upplýsingar heilsueflandi leikskóla og heilsueflandi grunnskóla um öryggismál og slysavarnir.
112 blaðið. Í 112- blaðinu sem fylgir Fréttablaðinu í dag er bent á fjölmargt sem unnt er að gera til að fyrirbyggja atvik af þessu tagi og bregðast við þeim, til dæmis með því að læra skyndihjálp, efla fallvarnir og auka eldvarnir og varnir gegn innbrotum.
Samstarfsaðilar 112-dagsins
112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu. Þau eru: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin og samstarfsaðilar um allt land.
Samræmt neyðarnúmer Evrópu
112 er samræmt neyðarnúmer Evrópu og er dagurinn haldinn víða um álfuna til að minna á að aðeins þarf að kunna þetta einfalda númer til þess að fá aðstoð í neyð. Markmiðið með 112- deginum er að kynna neyðarnúmerið 112 og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi. Markmið dagsins er enn fremur að efla samstöðu og samkennd þeirra sem starfa að forvörnum, björgun og almannavörnum og undirstrika mikilvægi samstarfs þeirra og samhæfingar