Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun Forsíða
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun Forsíða

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Um HMS

Hlut­verk

  • Að tryggja réttleika skráningar fasteigna og stuðla að því að grunnkröfur um mannvirki séu uppfylltar og kolefnisspor minnkað.

  • Að stuðla að samhæfingu og virku eftirliti með framkvæmd brunavarna, mannvirkjagerð, rafmagnsöryggis og markaðsgæslu vara.

  • Að tryggja húsnæðisöryggi með því að auka aðgengi almennings að viðunandi húsnæði með viðráðanlegan húsnæðiskostnað, hvort sem er til eignar eða leigu.

  • Að stuðla að stöðugleika og virkni á húsnæðismarkaði með greiningum á íbúðaþörf, birtingu rauntímaupplýsinga og áreiðanlegu fasteigna- og brunabótamati.

Fram­tíð­ar­sýn til árs­ins 2026

  • Að vera leiðandi í opinberri þjónustu, stafrænum lausnum, miðlun upplýsinga, samstarfi og nýsköpun á öllum málefnasviðum.

  • Að auka sjálfbæra þróun með því að efla rannsóknir, tryggja rekjanleika í mannvirkjagerð, virkja hringrásarhagkerfið og fjölga grænum hvötum.