Gjaldskrá
Gildir frá 1. janúar 2024.
Útlán og stofnframlög
1.1. Lántökugjald einstaklinga 64.500 krónur*
1.2. Lántökugjald húsnæðisfélaga allt að 1%**
1.3. Lántökugjald sveitarfélaga allt að 1%**
1.4. Lántökugjald leigufélaga allt að 1%**
* Þó ekki hærra en 1% af lánsfjárhæð eða 0,5% vegna lána til sérþarfa. Lántökugjald er fellt niður hjá fyrstu kaupendum af láni á 1. veðrétti.
** Lántökugjald á lánum til lögaðila geta samkvæmt gjaldskrá stjórnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar numið allt að 1% af lánsfjárhæð, en þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 2.500.000,- vegna hverrar lánveitingar.
2.1. Greiðsluáskorun 8.750 krónur +vsk.
2.2. Nauðungarsölubeiðni 3.500 krónur +vsk.
2.3. Kröfulýsing í uppboðsandvirði 8.750 krónur +vsk.
2.4. Tilkynninga- og greiðslugjald vegna stofnunar gjalddaga 150 krónur.
2.5. Heimsendur greiðsluseðill 350 krónur.
2.6. Milliinnheimtubréf send eftir 10, 30 og 50 daga vanskil, kostnaður fyrir hvert bréf og leggst á hvert lán 1.250 krónur.
3.1 Skuldbreyting 4.000 krónur.
3.2. Veðleyfi 6.500 krónur.
3.3. Veðbandslausn 6.500 krónur
3.4. Veðflutningur 15.000 krónur.
3.5. Yfirtaka lána 15.000 krónur.
3.6. Uppgreiðsla lána annarra en fyrirtækja 4.000 krónur.
3.7. Umsýsla lána ef 14 daga skilaréttur er nýttur 5.000 krónur.
3.8. Aðrar breytingar á skilmálum 4.000 krónur.
3.9. Umsýslugjald vegna uppgreiðslu hlutdeildarlána 15.000 krónur.
3.10. Endurrukkaður útlagður kostnaður vegna þinglýsingar skjala 2.700 krónur.
4.1. Greiðslumat er framkvæmt í samstarfi við Creditinfo og er gjald vegna greiðslumats innheimt samkvæmt gjaldskrá Creditinfo hverju sinni.
4.2. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að krefjast greiðslu vegna útlagðs kostnaðar vegna vottorða og gagna sem aflað er annars staðar frá, svo sem veðbandayfirlits fasteignar, skuldastöðuskrá og fleira. Þá er einnig heimilt að krefjast greiðslu útlagðs kostnaðar vegna innheimtuaðgerða sem unnar eru af utanaðkomandi aðilum í samræmi við þjónustusamninga sem stofnunin hefur gert við viðkomandi aðila. Sem dæmi má nefna kostnað vegna birtingar greiðsluáskorunar, nauðungarsölugjald til ríkissjóðs og innheimtukostnað frá utanaðkomandi innheimtustofnunum.
4.3. Upp- og umframgreiðslugjald vegna útlána til lögaðila miðast við núvirt greiðsluflæði frá greiðsludegi fram að vaxtaendurskoðunardegi eða lokagjalddaga. Uppgreiðslugjald sjóðsins tekur mið af kostnaði Húsnæðissjóðs við uppgreiðslu fjármögnunar til ríkissjóðs.
Bruna- og mannvirkjamál
5.1. Námskeiðsgjald fyrir byggingarstjóra 25.000 krónur.
5.2. Próftökugjald fyrir byggingarstjóra 25.000 krónur.
5.3. Námskeiðsgjald fyrir hönnuði 75.150 krónur.
5.4. Próftökugjald fyrir hönnuði 43.750 krónur.
5.5. Námskeiðsgjald fyrir þjónustuaðila brunavarna 13.780 krónur. Gjaldið skal greitt við upphaf námskeiðs.
6.1. Byggingarstjórar
6.1.1. Útgáfa starfsleyfis 13.780 krónur
6.1.2. Endurnýjun starfsleyfis 13.780 krónur.
6.1.3. Endurskoðun og breyting á starfsleyfi 13.780 krónur.
6.2. Skoðunarstofur
6.2.1. Útgáfa starfsleyfis 43.450 krónur.
6.2.2. Endurnýjun starfleyfis 19.900 krónur.
6.2.3. Endurskoðun og breyting starfsleyfis 19.900 krónur.
6.3. Þjónustuaðilar brunavarna
6.3.1. Útgáfa starfsleyfis 43.450 krónur.
6.3.2. Endurnýjun starfsleyfis 19.900 krónur.
6.3.3. Endurskoðun og breyting starfsleyfis 19.900 krónur.
Gjaldið skal greitt við útgáfu starfsleyfis.
Hafi vinna við úttekt á aðstöðu vegna starfsleyfis í för með sér meiri kostnað en nemur gjaldi samkvæmt grein þessari er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu og ferðakostnað samkvæmt 15. grein eða annan útlagðan kostnað samkvæmt framlögðum reikningum.
Þegar ljóst er að útgáfa leyfis hefur í för með sér umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu.
7.1. Hönnuðir 12.000 krónur.
7.2. Iðnmeistarar 12.000 krónur.
7.3. Slökkviliðsmenn 12.000 krónur.
7.4. Rafverktakar 12.000 krónur. *
*Gjaldið skal greitt við útgáfu löggildingar og er innheimt samkvæmt 10. grein laga um aukatekjur ríkissjóðs númer 88/199.
8.1. Byggingarleyfi og byggingarheimild
8.1.1. Lágmarksgjald við móttöku umsóknar um byggingarleyfi eða byggingarheimild 13.780 krónur.
8.1.2. Endurnýjun byggingarleyfis eða byggingarheimildar 13.780 krónur.
8.1.3. Sé þörf á yfirferð hönnunargagna við endurnýjun skal sú vinna greidd sérstaklega samkvæmt 15. grein.
8.2. Framkvæmdaleyfi
8.2.1. Lágmarksgjald við móttöku umsóknar um framkvæmdaleyfi 13.780 krónur.
8.3. Stöðuleyfi
8.3.1. Umsókn um stöðuleyfi 13.780 krónur.
8.4. Móttaka gagna vegna tilkynningaskyldra framkvæmda 13.780 krónur.
Greitt er fyrir vinnu starfsmanna samanber 8.2 – 8.4 við yfirferð uppdrátta og annarra hönnunargagna, svo sem vegna burðarþols-, lagna- og séruppdrátta hönnuða, breytinga á innra skipulagi eða slökkvikerfa samkvæmt tímagjaldi samkvæmt 15. grein. Áætlun skal kynnt við upphaf vinnu.
8.5. Úttektir og vottorð:
8.5.1. Lágmarksgjald vegna áfangaúttektar 13.780 krónur.
8.5.2. Lágmarksgjald vegna öryggisúttektar 25.000 krónur.
8.5.3. Lágmarksgjald vegna lokaúttektar 37.500 krónur.
8.5.4. Lágmarksgjald vegna stöðuskoðunar 12.500 krónur.
8.5.5. Lágmarksgjald vegna byggingarstjóraskipta 25.000 krónur.
8.5.6. Gjald fyrir vottorð og staðfestingu á úttektum samkvæmt liðum 8.5.1-8.5.5. 12.500 krónur.
8.6. Lágmarksgjald vegna úttektar á gæðastjórnunarkerfum byggingarfulltrúa 47.500 krónur.
8.7. Lágmarksgjald vegna úttektar á gæðastjórnunarkerfum þjónustuaðila brunavarna 47.500 krónur.
8.8. Lágmarksgjald vegna staðfestingar á nothæfi 47.500 krónur.
8.9. Lágmarksgjald vegna gagnkvæmrar viðurkenningar gagna samkvæmt lögum um byggingarvörur 47.500 krónur
HMS er heimilt að krefjast greiðslu vegna kostnaðar við utanaðkomandi sérfræðiráðgjöf sem þörf er á í tengslum við mat á gögnum sem liggja til grundvallar umsókn, en þó aðeins að því marki sem lágmarksgjaldið nægir ekki til að greiða heildarkostnað vegna afgreiðslu umsóknarinnar.
Kostnaður vegna utanaðkomandi sérfræðiráðgjafar skal vera í samræmi við þjónustusamninga sem HMS hefur gert við viðkomandi aðila.
Þegar ljóst er að þörf er á utanaðkomandi aðstoð við mat á gögnum skal umsækjanda um gagnkvæma viðurkenningu gerð grein fyrir líklegum kostnaði vegna hennar í samræmi við áætlun sem HMS hefur fengið frá þeim aðila sem leitað verður til.
Gjald samkvæmt þessum lið skal greitt við útgáfu yfirlýsingar HMS um gagnkvæma viðurkenningu gagna.
8.10. Útmælingar á mannvirkjum
Gjald fyrir útmælingu mannvirkja skal miðast við vinnuframlag og skal ferðakostnaður og tímagjald innheimt samkvæmt 15. grein, en annar útlagður kostnaður Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar samkvæmt framlögðum reikningum.
Áætlun um kostnað vegna útmælingu skal gefin út og kynnt við upphaf vinnunnar. Gjaldið skal greitt við lok vinnunnar.
Hafi úttekt eða vinna við útgáfu leyfa, vottorða, úttekta og fleira samkvæmt grein þessari í för með sér meiri kostnað en nemur gjaldi er heimilt að innheimta tímagjald fyrir slíka umframvinnu samkvæmt 15. grein ferðakostnað samkvæmt 15. grein og annan útlagðan kostnað samkvæmt framlögðum reikningum.
Þegar ljóst er að þörf er á umframvinnu skal umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu og skal reikningur gefinn út þegar úttekt eða vinnu er lokið.
Önnur gjöld samkvæmt þessari grein skulu greidd við upphaf úttektar eða vinnunnar.
Lögmælifræði - markaðseftirlit
9.1. Löggildingar (samkvæmt 10. grein laga um aukatekjur ríkissjóðs)
9.1.1. Löggilding vigtarmanna 12.000 krónur
9.1.2. Bráðabirgðalöggilding vigtarmanna 12.000 krónur
9.2. Vigtarmannanámskeið í Reykjavík (samkvæmt auglýsingu nr. 465/2018)
9.2.1. Almennt vigtarmannanámskeið 88.500 krónur
9.2.2. Endurmenntunarnámskeið vigtarmanna 37.200 krónur
Aukakostnaður vegna námskeiða utan Reykjavíkur reiknast fyrir hvert tilvik og byggist á dagpeningum, ferðakostnaði og ferðatíma.
9.3. Eðalmálmar (samkvæmt 12. grein laga um eðalmálma nr. 77/2002)
9.3.1. Viðurkenning og skráning á nafnastimpli 10.000 krónur
9.3.2. Eftirlitsgjald 12.000 krónur
Við eftirlitsgjald samkvæmt 9.3.2 getur bæst tilfallandi kostnaður, líkt og kostnaður vegna sýnatöku og greiningar sýna og ferðakostnaður, eftir því sem við á.
9.4. Útseld ráðgjafar- og sérfræðiþjónusta (samkvæmt auglýsingu númer 256/2019)
9.4.1. Sérfræðingur I 27.000 krónur
9.4.2. Sérfræðingur II 23.000 krónur
9.5. Nikótínvörur (samkvæmt reglugerð 992/2022)
9.5.1. Tilkynningargjald vegna markaðssetningar nikótínvara 75.000 krónur
9.5.2. Vinnslugjald leyfisumsóknar 27.224 krónur
9.5.3. Tímagjald sérfræðings vegna eftirlits 18.216 krónur
Við eftirlitsgjald samkvæmt 9.5.3 getur bæst tilfallandi kostnaður, líkt og ferðakostnaður, eftir því sem við á.
Fasteignaskrá, fasteignamat og brunabótamat
10.1. Gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta.
Sveitarfélög skulu greiða gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta og fasteignagjalda. Skal gjaldið nema 0,0060% af heildarfasteignamati í viðkomandi sveitarfélagi 31. desember ár hvert. Gjaldið skal innheimt árlega í janúarmánuði.
10.2. Gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi.
Vátryggingafélög skulu greiða gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi. Skal gjaldið nema 0,00021% af brunabótamati allra húseigna sem eru tryggðar hjá viðkomandi vátryggingafélagi í lok hvers mánaðar. Gjaldið skal innheimt mánaðarlega.
10.3. Gjald fyrir stofnun nýrrar fasteignar
Gjald fyrir stofnun nýrrar fasteignar í fasteignaskrá 35.200 krónur.
11.1. Lágmarksgjald fyrir endurmat brunabótamats fasteigna (skv. gjaldskrá nr. 446/2001) 6.000 krónur
Sé brunabótamat hærra en 25.000.00 kr. skal greiða 0,03% af gildandi brunabótamati
Sé gildandi brunabótamat hærra en 500.000.00 kr. skal greiða 0,01% af þeirri upphæð sem umfram þá fjárhæð er. (samkvæmt gjaldskrá nr. 446/2001).
Auk gjalds fyrir aðgang að upplýsingum samkvæmt ákvæðinu í grein 13.1, skal greiða einingaverð, samanber greinar. 13.2, 13.3 og 13.4.
Aðgangur að upplýsingum úr fasteignaskrá
Gjald fyrir aðgang að upplýsingum úr fasteignaskrá er sem hér segir:
12.1 Mánaðarlegt þjónustugjald vefþjónustu, FTP gagnaveitu og vefuppflettinga 5.400 krónur
12.2 Stofngjald vefþjónustu 90.300 krónur
Stofngjald gagnaveitu 90.300 krónur
12.3 Gjald fyrir breytingar rafrænna skilríkja 9.150 krónur
Einingaverð úr fasteignaskrá
12.4 Greiða skal einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignaskrá. Svæðin eru:
a. mannvirkja- og lóðasvæði,
b. matssvæði,
c. eigendasvæði.
Einingaverð er miðað við fjölda fasteigna sem óskað er upplýsinga um og tekur mið af fjölda svæða fyrir hverja fasteign. Miðað er við notkun á einu almanaksári og reiknast afsláttur þegar tilteknum fjölda fasteigna er náð.
Fjöldi fasteigna | Eitt svæði | Tvö svæði | Þrjú svæði |
---|---|---|---|
1 – 70.000 | 32 krónur | 63 krónur | 95 krónur |
70.001 – 140.000 | 28 krónur | 55 krónur | 83 krónur |
Fleiri en 140.000 | 24 krónur | 49 krónur | 73 krónur |
12.5 Önnur einingaverð fyrir upplýsingar úr fasteignaskrá eru sem hér segir:
12.5.1 Yfirlitsmynd (yfirlit heitis) 95 krónur
12.5.2 Eigendasaga fasteignar 95 krónur
12.5.3 Breytingasaga fasteignar 95 krónur
12.6 Einingaverð úr þinglýsingarhluta
12.6.1 Gjald fyrir vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingabók 1.100 krónur
12.6.2. Mánaðargjald fyrir rafræna vöktun á breytingum á veðbandayfirliti eignar er miðað við fjölda eigna í vöktun á hverju almanaksári:
Fjöldi eigna í vöktun | Verð fyrir hverja eign |
---|---|
1 - 100 | 94 krónur |
101 – 1.000 | 61 króna |
1.001 – 10.000 | 52 krónur |
10.001 – 20.000 | 41 króna |
Fleiri en 20.000 | 31 króna |
c) Rafræn endurrit skjala:
12.6.3. Skjalalisti (listi yfir rafræn endurrit skjala í þinglýsingarhluta) 95 krónur
12.6.4. Gjald fyrir rafrænt endurrit skjals í þinglýsingarhluta 380 krónur
12.7 Einingaverð úr verðskráningargrunnum
Gjald fyrir upplýsingar um hverja fasteign verðskráningargrunnum:
12.7.1. Einingaverð úr kaupskrá 155 krónur
12.7.2. Einingaverð úr leiguskrá 155 krónur
13.1 Sérvinnslur
13.1.1. Einingaverð upplýsinga úr fasteignaskrá samkvæmt 12. grein
13.1.2. Límmiðagjald/línugjald pr. stk./línu á sérvinnslum á pdf formi 14 krónur
13.1.3. Byrjunargjald sérvinnslu (innifalið 2 klst. vinna sérfræðings) 54.400 krónur
Vinna umfram 2 klukkustundir er greidd samkvæmt grein 15.
Fjöldi afhendinga á almanaksári | Afsláttur af reiknuðu gjaldi afhendingar |
---|---|
2-4 afhendingar á ári | 25% afsláttur af gjaldi fyrir 2-4 afhendingar á ári |
5 eða fleiri afhendingar | 50% afsláttur af gjaldi fyrir 5 eða fleiri afhendingar á ári |
13.2 Vottorð, uppflettingar og ljósrit
Vottorð sem krefjast sérvinnslu:
13.2.1 Tímagjald sérfræðings samkvæmt 15. grein
13.2.2. Afhending lista úr fasteignaskrá 916 krónur
13.2.3. Ljósrit per bls. 26 krónur
13.2.4. Staðfest ljósrit úr skrám 916 krónur
Eignastöðuvottorð
13.2.5. Fyrir hverja kennitölu 4.130 krónur
13.2.6. Viðbótargjald fyrir hverja færslu 58 krónur
Rafræn afhending vottorða
13.2.7. Eignastöðuvottorð fyrir hverja kennitölu 880 krónur
13.2.8. Vottorð fyrir áætlað fasteignamat fyrir fasteignir í byggingu 530 krónur
13.3. Miðlun upplýsinga úr skrám Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Miðlun upplýsinga úr skrám Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er óheimil nema fyrir liggi samningur um miðlun. Með miðlun upplýsinga er átt við miðlun til þriðja aðila hvort sem hún fer fram gegn gjaldi (endursala) eða ekki. Auk árgjalds er greitt fyrir upplýsingarnar samkvæmt grein 12 og 13 eftir því sem við á.
Árgjald miðlara 438.500 krónur
13.4. Vinnsla með persónuupplýsingar úr skrám Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Vinnsla með persónuupplýsingar úr skrám Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fyrir hönd þriðja aðila er óheimil nema fyrir liggi samningur um slíka vinnslu. Átt er við hvers kyns tölfræðivinnslu, úrtaksvinnslu eða aðra vinnslu fyrir þriðja aðila hvort sem hún fer fram gegn gjaldi (endursala) eða ekki. Auk árgjalds er greitt fyrir upplýsingarnar samkvæmt gr. 12 og 13 eftir því sem við á.
Árgjald vinnsluaðila 60.400 krónur
13.5. Undanþágur frá gjaldskrá.
Heimilt að veita eftirtöldum aðilum afslátt eða undanþágur frá gjaldtöku:
a. Námsmönnum sem upplýsingar þurfa vegna verkefna í þágu náms.
b. Opinberum aðilum sem halda skrár á landsvísu og upplýsingar eða vinnsla er hluti af gagnkvæmum upplýsingasamskiptum.
c. Fjölmiðlum ef upplýsingar varða heildarfjölda eða summutölur úr skrám.
d. Skráningaraðilum sem annast skráningu í skrár Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
e. Miðlurum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar 10% afslátt af gjöldum vegna endursölu upplýsinga sem taldar eru upp í grein 12.4 og 12.6.2.
Leigumál
14.1. Afrit leigusamninga úr leiguskrá 864 krónur
14.2. Skráning pappírssamninga í leiguskrá 2.700 krónur
Sameiginleg ákvæði
15.1. Vinna almenns starfsmanns á klukkustund 12.800 krónur
15.2. Vinna sérfræðings á klukkustund 18.700 krónur
Fyrir útkall eftir almennan opnunartíma er innheimt að lágmarki 4 tímar á taxta almenns starfsmanns.
15.3. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármálaráðuneytisins.
15.4. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að krefjast endurgreiðslu vegna útlagðs kostnaðar og kostnaðar vegna útseldrar vinnu.
16.1. Eindagi gjalda skv. gjaldskrá þessari er 14 dögum eftir útgáfu reiknings, nema annað sé tekið fram.
16.2. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga. Heimilt er að innheimta kostnað sem hlýst af innheimtu gjalda séu þau ekki greidd á eindaga.
16.3. Gjalddagar einstakra gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eru eftirfarandi:
16.3.1. Gjalddagi lágmarksgjalds vegna byggingarleyfis er við móttöku umsóknar og gjalddagi byggingarleyfisgjalds við útgáfu byggingarleyfis en þó áður en leyfi er gefið út. Dragi umsækjandi umsókn sína til baka eða umsókn er synjað er lágmarksgjald ekki endurgreitt. Falli byggingarleyfishafi frá notkun byggingarleyfis eða byggingarleyfi fellur úr gildi er lágmarksgjald og byggingarleyfisgjald ekki endurgreitt.
16.3.2. Gjalddagi úttektargjalda áfangaúttekta er við útgáfu byggingarleyfis en þó áður en leyfi er gefið út.
16.3.3. Vottorð og staðfestingar á úttektum skulu greidd við afhendingu þeirra.
16.3.4. Gjalddagi skoðunargjalds er samhliða beiðni um skoðun.
16.3.5. Gjalddagi annarra gjalda skv. gjaldskrá þessari eru skv. ákvæðum um einstök gjöld.
16.3.6. Gjöldum samkvæmt. 51. og 52. grein laga númer 160/2010 um mannvirki fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi, samanber 3. málsgrein 53. grein laganna.
Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli:
16. grein laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar númer 137/2019
52. grein laga um mannvirki númer 160/2010
38. grein laga um brunavarnir númer 75/2000
24. grein laga um skráningu og mat fasteigna númer 6/2001
Þannig samþykkt á fundi stjórnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þann 29. október 2024.