ISAC flutt í Katrínartún 4
19. júní 2023
ISAC, Faggildingarsvið Hugverkastofunnar flytur í nýtt húsnæði að Katrínartúni 4
ISAC, faggildingarsvið Hugverkastofunnar er flutt í nýtt húsnæði að Katrínartúni 4, 3. hæð. Í Katrínartúninu verður öll starfsemi Hugverkastofunnar og faggildingarsviðs á einni hæð í opnu, nútímalegu og björtu rými og þar er góð aðstaða fyrir starfsmenn og til að taka á móti gestum og viðskiptavinum.
Engar breytingar verða á þjónustu stofnunarinnar við flutningana. Frekari fyrirspurnir varðandi flutningana má senda á isac@isac.is eða hafa samband í síma 580 9400.