Fara beint í efnið
Faggilding - ISAC Forsíða
Faggilding - ISAC Forsíða

Faggilding - ISAC

Al­þjóða­dagur faggildingar

7. júní 2024

Alþjóðadagur faggildingar er þann 9. júní næstkomandi.

World accredidation day 2024 photo

Innan Evrópska efnahagssvæðisins hefur á undanförnum áratugum verið unnið að því að samræma kröfur um öryggi vöru, til að tryggja heilbrigði og öryggi, neytendavernd og vernd umhverfisins. Kröfurnar eru settar fram í tilskipunum og reglugerðum, oft studdar ítarlegri kröfum í evrópskum stöðlum. Mikilvægur hluti regluverksins eru ákvæði um á hvern hátt kröfunum skuli framfylgt.

Í þessu kerfi er lögð megináhersla á ábyrgð framleiðenda vöru, sem oftast þurfa að nýta sér aðferðir samræmismats (s.s. skoðanir, prófanir, vottanir, sannprófun) til að sýna fram á samræmi vöru við lög, reglur og staðla. Það skiptir miklu að allt samræmismat sé unnið á hæfan, gagnsæjan og hlutlausan hátt sem tryggir bæði hagsmuni neytenda og frjálst flæði vöru og þjónustu. Vara og þjónusta sem uppfyllir kröfur stjórnvalda í einu landi skal einnig fá óhindraðan aðgang að mörkuðum í öðrum löndum EES.

Í evrópskum reglugerðum og tilskipunum um öryggi vöru er stuðst við samræmda aðferðafræði sem framleiðendur, dreifingaraðilar og seljendur skulu fara eftir þegar lýst er yfir samræmi við lög og reglur. Ein grunnstoðin í þessari aðferðafræði er beiting faggildingar til þess að tryggja að samræmismat sé framkvæmt á traustan, gagnsæjan og hlutlausan hátt.

Hvað er faggilding?

Faggilding er mat óháðs sérfræðiaðila (faggildingarstofnunar) á starfsemi samræmismatsaðila til að tryggja að samræmismatið sé framkvæmt á hlutlausan hátt, með réttri þekkingu og hæfni og fylgi viðeigandi gagnreyndum ferlum og aðferðum sem sett eru fram í stöðlum og öðrum kröfuskjölum. Starfsemi faggildingarstofnana fylgir alþjóðastöðlum sem skilgreina starfsaðferðir þeirra, sem og starfsemi samræmismatsaðila, og er samræmd á alþjóðavísu innan evrópskra og alþjóðlegra samtaka. Opinber faggildingarstofnun á Íslandi er Faggildingarsvið Hugverkastofunnar.

Hæfi og hæfni evrópskra faggildingarstofnana er metin reglulega með jafningjamati á vegum evrópsku faggildingarsamtakanna. Jafningjamat á starfsemi Faggildingarsviðs fór fram árið 2022 og hlaut stofnunin viðurkenningu á sviði faggildingar á skoðunarstofum.

Jákvæð niðurstaða jafningjamats er í mörgum tilvikum forsenda þess að íslenskar vörur hljóti óhindraðan aðgang að mörkuðum utan Íslands, án þess að þurfa að undirgangast viðbótarmat. Það er þó ekki síður í þágu löggjafans og almennings að með faggildingu sé tryggt að allt samræmismat sé traustsins vert, gagnsætt og sé framkvæmt á sem hagkvæmastan hátt.

Staðan á Íslandi

Faggildingu má beita á mjög mörgum sviðum, en eðli hennar krefst þess að lög, reglur og önnur viðmið séu skýr og byggð á samræmdri túlkun og skilgreindum aðferðum og ferlum við framkvæmd samræmismats. Faggildingarsvið Hugverkastofunnar hefur það hlutverk að tryggja, með faggildingu, að samræmismat á Íslandi sé traustsins vert og framkvæmt í samræmi við lög, reglur og önnur kröfuskjöl.

Notkun faggildingar hefur til þessa verið minni hérlendis en í öðrum löndum EES. Í ljósi nýlegrar umræðu um stöðu opinbers eftirlits hér á landi innan ýmissa málaflokka er rétt að hvetja til þess að aðferðafræði faggildingar verði beitt á mun fleiri sviðum en nú er. Með innleiðingu kerfa þar sem faggilding tryggir traust, gagnsætt og hlutlaust samræmismat má draga úr umfangi og kostnaði við opinbert eftirlit. Góð reynsla er af faggildingu á þeim sviðum þar sem hún hefur lengi verið notuð, s.s. varðandi skoðun ökutækja og rafmagnsöryggi.

Faggilding – Ávinningur allra

Fyrir stjórnvöld – til að staðfesta tæknilega hæfni og hlutleysi við samræmismat, þegar lög og reglugerðir gera kröfu um slíkt mat.

Fyrir framleiðendur – til að sýna fram á að kröfur laga, reglugerða og staðla séu uppfylltar, og til að öðlast hindrunarlaust aðgengi að erlendum mörkuðum.

Fyrir samræmismatsaðila – til að tryggja að starfsemi þeirra byggist á gagnreyndum aðferðum og ferlum sem beitt er af hæfni og hlutleysi.

Fyrir neytendur – til að efla traust á gæðum og öryggi vöru og koma í veg fyrir endurteknar prófanir/vottanir sem leiða myndu til hækkaðs vöruverðs.

Höfundur: Guðrún Rögnvaldardóttir – sérfræðingur hjá ISAC, Faggildingarsviði Hugverkastofunnar

World accredodatopm day 2024

Faggilding - ISAC

ISAC

kt. 520319 2120

Heim­il­is­fang

Katrínartún 4
105 Reykjavík

Hafðu samband

Sími: 580 9400
Netfang: isac@isac.is

Kvart­anir og ábend­ingar

Smelltu hér