Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Velheppnað málþing um fyrstu þrjú ár innleiðingar farsældarlaganna (hlekkur á upptöku)

30. janúar 2025

Farsæld til framtíðar - málþing um fyrstu þrjú ár innleiðingar farsældarlaganna fór fram á Grandhótel mánudaginn 27. janúar síðastliðinn. Um 160 boðsgestir mættu í sal og um 700 fylgdust með á streymi.

Farsæld til framtíðar málþing - mynd

Á málþinginu var farið yfir fyrstu þrjú ár innleiðingar laganna hjá hinum ýmsu stofnunum og sveitarfélögum sem hafa hlutverk samkvæmt farsældarlögunum en einnig var horft til framtíðar. Nú þegar 3 ár eru liðin frá gildistöku laganna stöndum við á ákveðnum tímamótunum og því gagnlegt að horfa yfir farinn veg, ræða það hvar við erum stödd, hvernig okkur hefur tekist til og sjá hverju vinna að farsæld barna hefur skilað.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra setti þingið og fór meðal annars yfir verkefni sem ráðuneytið hefur lagt sérstaklega áherslu á síðustu misseri það er tilkomu svæðisbundinna farsældarráða ásamt kynningarátaki ætlað börnum og foreldrum (sjá nánar: farsældbarna.is). Einnig sagði ráðherra frá verkefnum sem framundan eru og ætlað er að vinna að farsæld allra barna á Íslandi.

Farsæld til framtíðar málþing - mynd

Frumkvöðlasveitarfélögin, Akureyri, Akranes, Árborg og Vestmannaeyjar sögðu frá reynslu sinni við innleiðingu farsældarlaganna, áskorunum og tækifærum. Samstarfssamningur sveitarfélaganna við MRN lauk nú um áramótin en þeim var markað þriggja ára tímabil til að starfa sem frumkvöðlasveitarfélög og draga þannig vagninn þegar kemur að innleiðingu farsældarlaganna í þéttu samstarfi við MRN, SÍS og BOFS. Samvinnan hefur bæði verið lærdómsrík og árangursrík.

Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu

Eftir hádegi voru áhugaverð örerindi frá ýmsum þjónustuveitendum sem sinna þjónustu við börn og foreldra.

Örerindi

Hægt er að nálgast upptöku af málþinginu og horfa á í heild eða velja eftir þeim erindum sem voru flutt:

Farsæld til framtíðar - fyrstu þrjú ár innleiðingar farsældarlaganna