Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Fræðslufundur um inngildandi samfélag (Upptaka)

27. janúar 2025

Þriðjudaginn 21. janúar stóð Barna- og fjölskyldustofa ásamt Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir fræðslufundi á Teams undir yfirskriftinni: „Hvernig stuðlum við að inngildandi samfélagi fyrir börn og fjölskyldur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn?“

Fundur um inngildandi samfélag

Það var mikill áhugi á fundinum sem haldinn var á Teams, en um 400 manns frá ólíkum stofnunum velferðar- og menntamála um allt land, hlýddu á erindin. Það er greinilega mikill áhuga á málefninu og greinileg þörf fyrir samtal, samræmingu og samvinnu um menntun og farsæld barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Alls voru flutt fimm erindi frá eftirtöldum aðilum: Mennta og barnamálaráðuneytinu, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Svæðisstöð íþróttahéraða og velferðarsviði Reykjanesbæjar. Erindin fjölluðu m.a. um hvernig ólík kerfi og verkefni miða að því að styðja börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn til virkrar þátttöku í samfélaginu.

Hér má finna tengil á upptöku af fundinum.