Hvernig stöndum við að inngildandi samfélagi fyrir börn og fjölskyldur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn?
13. janúar 2025
Þriðjudaginn 21. janúar nk. milli klukkan 10:00-11:30 stendur Barna- og fjölskyldustofa í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir fræðslufundi á Teams.
Fræðslan samanstendur af kynningum frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, mennta- og barnamálaráðuneytinu, velferðarsviði Reykjanesbæjar og Íþróttasambandi Íslands og fjalla erindin m.a um það hvernig ólík kerfi og verkefni miða að því að styðja börn með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn til virkrar þátttöku í samfélaginu.
Hér má finna hlekk á auglýsingu í PDF formi.