Blóðbankabíllinn
Blóðbankabíllinn er á ferðinni tvisvar til þrisvar sinnum í viku og heimsækir hann þá stærri þéttbýliskjarna í grennd við höfuðborgarsvæðið, menntaskóla, háskóla og ýmis fyrirtæki. Einnig eru farnar lengri ferðir tvisvar á ári til dæmis á Snæfellsnes og um Norðurland.
Í bílnum eru fjórir söfnunarbekkir og góð aðstaða til blóðsöfnunar.
Reykjanesbær við KFC þriðjudaginn 8 apríl frá 10 til 17
KPMG Borgartúni 27 miðvikudaginn 9 apríl frá 0930 til 1400