Ríkisborgararéttur fyrir börn og ungmenni
Ungmenni 18-20 ára
Ungmenni 18-20 ára, sem hefur búið samfellt á Íslandi frá 13 ára aldri, getur fengið íslenskan ríkisborgararétt með því að tilkynna það skriflega til Útlendingastofnunar.
Skilyrði
Til að þú getir fengið íslenskt ríkisfang með tilkynningu verður þú að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Þú ert eldri en 18 ára og yngri en 21 árs.
Þú hefur haft lögheimili á Íslandi frá 13 ára aldri.
Þú hefur dvalist á Íslandi samfellt frá 13 ára aldri.
Kostnaður
Afgreiðslugjald er 13.500 krónur.
Tilkynning er ekki tekin til vinnslu fyrr en greiðsla hefur borist, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.
Umsókn
Tilkynningar er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.
Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang.
Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ísland
Fylgigögn
Sjá nánari leiðbeiningar varðandi kröfur til skjala. Ekki þarf vottun á íslensk vottorð.
Tilkynning: Í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.
Greiðslukvittun.
Vegabréf: Afrit af síðum með persónuupplýsingum, rithandarsýnishorni og öllum stimplum.
Fæðingarvottorð: Staðfest afrit af frumriti. Frumritið þarf að vera lögformlega staðfest með apostille vottun eða keðjustimplun, og síðan tekið af því staðfest afrit.
Þýðing fæðingarvottorðs: Ef vottorðið er ekki á ensku eða Norðurlandamáli þarftu að leggja fram staðfest afrit eða frumrit þýðingar, sem gerð er af löggiltum skjalaþýðanda.
Búsetutímavottorð frá Þjóðskrá: Vottorðið tilgreinir í hvaða landi eða löndum þú hefur átt lögheimili frá upphafi lögheimilisskráningar á Íslandi til dagsins í dag.
Skólavottorð, ef við á: Frá grunnskóla og/eða framhaldsskóla sem þú hefur gengið í á Íslandi.
Lög
Íslenskur ríkisborgararéttur er veittur ungmennum 18-20 ára samkvæmt 1. málsgrein 3. greinar laga um íslenskan ríkisborgararétt númer 100/1952.
Ríkisborgararéttur fyrir 18-20 ára
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun