Fara beint í efnið

Rekstur leigubíls

Umsókn um rekstrarleyfi til leigubílaaksturs

Þeir sem vilja reka leigubíl í sinni eigu eða umráðum þurfa rekstrarleyfi frá Samgöngustofu.

Ferlið

  1. Sækja námskeið hjá Ökuskólanum í Mjódd

  2. Sækja um rekstrarleyfi hjá Samgöngustofu og skila inn öllum gögnum

  3. Uppfylla skilyrði fyrir rekstrarleyfi

  4. Samgöngustofa gefur út staðfestingu vegna breytingaskoðunar svo hægt sé að fara með bílinn í skoðun til að breyta honum í leigubíl

  5. Rekstrarleyfi gefið út til fimm ára

Fylgigögn

Mikilvægt er að skila inn öllum fylgigögnum með umsókn.

  • Afrit af ökuskírteini (báðar hliðar)

  • Búsforræðisvottorð - island.is eða Héraðsdómur

  • Staðfesting á að opinber gjöld séu ekki í vanskilum - island.is eða Skatturinn (Ef umsækjandi er lögaðili þarf að skila staðfestingu á kennitölu lögaðilans)

  • Ef umsækjandi hefur verið með skráð lögheimili erlendis þarf einnig að skila sakavottorði frá viðkomandi landi/löndum skv. 3. tölul. 2 mgr. 6. gr laga um leigubifreiðaakstur

  • Staðfesting á tryggingu fyrir leigubíl frá tryggingarfélagi

  • Mynd í leyfisskírteini (nýleg og skýr andlitsmynd með hlutlausum bakgrunni)

  • Afrit af undirrituðum samningi við leigubílastöð ef rekstrarleyfishafi ætlar að framselja stöð skyldur sínar

  • Einstaklingar sem eru með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins skulu framvísa dvalar- og atvinnuleyfi

Samgöngustofa hefur yfirlit yfir þá sem hafa lokið leigubílanámskeiðum og aflar upplýsinga úr sakaskrá Íslands og því þarf ekki að skila inn þeim gögnum nema annað sé tekið fram.


Afgreiðsla umsókna

  • Samgöngustofa gefur út rekstrarleyfi til fimm ára þegar öllum skilyrðum er fullnægt, greiðsla hefur borist og bíllinn hefur verið skráður sem leigubifreið

  • Þegar gögn vantar með umsókn eða skilyrðum er ekki fullnægt, lætur Samgöngustofa vita með tölvupósti

Kostnaður

  • Kostnaður við rekstrarleyfi er samkvæmt gjaldskrá Samgöngustofu og er 16.000 krónur

  • Kostnaður við ökunám og námskeið fyrir leigubíla fer eftir gjaldskrá ökuskóla

  • Greiða þarf fyrir þau vottorð og gögn sem afla þarf hjá öðrum stofnunum


Umsókn um rekstrarleyfi til leigubílaaksturs

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa