Fara beint í efnið

Persónulegir talsmenn fyrir fatlað fólk

Fatlaður einstaklingur sem á vegna fötlunar sinnar erfitt með að gæta hagsmuna sinna skal eiga rétt á persónulegum talsmanni. Fatlaður einstaklingur velur sér talsmann í samráði við sýslumann. Ef vafi leikur á vilja fatlaðs einstaklings skal hafa samráð við nánustu aðstandendur, svo sem ættingja, vini eða þjónustuveitendur.

Hinn fatlaði einstaklingur og persónulegur talsmaður hans skulu undirrita samkomulag um aðstoðina sem mælir fyrir um heimildir talsmanns. Geti hinn fatlaði einstaklingur ekki undirritað samkomulagið er heimilt að víkja frá skilyrði um undirritun en þá skal samkomulag gert að sýslumanni viðstöddum.

Samkomulag milli fatlaðs einstaklings og persónulegs talsmanns skal borið undir sýslumann til staðfestingar á vali á talsmanni og efni samkomulagsins.

Erindi til sýslumanns um persónulegan talsmann

Sýslumenn tóku þann 1. janúar 2025 við umsýslu með samningum sem varða persónulega talsmenn fyrir fatlað fólk. Fatlaður einstaklingur leitar því nú til sýslumanns en ekki Réttindagæslu fyrir fatlað fólk við val á persónulegum talsmanni eða þegar afturkalla þarf umboð viðkomandi.

Samningar sem þegar hafa verið gerðir halda gildi sínu þrátt fyrir flutning verkefnisins yfir til sýslumanns nú um áramótin. Fyrst um sinn og meðan á yfirfærslu verkefnisins stendur, má búast við einhverjum töfum á afgreiðslu og samþykkt nýrra samninga.

Hægt er að fylla út eyðublað hér á vefnum til að senda sýslumanni fyrirspurn og fá upplýsingar vegna samninga um persónulega talsmenn fyrir fatlað fólk. Sýslumaður mun hafa samband við fyrirspyrjanda innan þriggja daga og veita upplýsingar og leiðbeiningar um úrræði og erindi um persónulegan talsmann.
Búseta aðila ræður því almennt hvaða sýslumaður svarar við fyrirspurninni.

Skilyrði fyrir því að vera persónulegur talsmaður

Persónulegur talsmaður skal búa yfir þekkingu á persónulegum þörfum og áhugamálum þess fatlaða einstaklings sem hann aðstoðar. Persónulegur talsmaður skal vera lögráða og varði samkomulag ráðstöfun fjármuna skal hann einnig vera fjár síns ráðandi. Hafi hann hlotið refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla, XXVI. kafla, 211. eða 218. gr. almennra hegningarlaga skal sýslumaður meta hvort hann sé hæfur til að verða persónulegur talsmaður. Persónulegur talsmaður skal fá fræðslu um innihald og áherslur í starfi sínu. Starf persónulegra talsmanna er ólaunað.

Eftirlit með persónulegum talsmanni

Sýslumaður hefur eftirlit með framkvæmd samkomulags milli fatlaðs einstaklings og persónulegs talsmanns. Persónulegur talsmaður skal ár hvert gefa sýslumanni skýrslu um framkvæmd samkomulagsins. Skal þar gerð grein fyrir þeirri aðstoð sem persónulegur talsmaður veitti hinum fatlaða einstaklingi á fyrra ári. Nái samkomulag til aðstoðar við ráðstöfun fjármuna vegna daglegra útgjalda skal sérstaklega gerð grein fyrir þeirri aðstoð með gögnum og skýringum um útgjöld. Persónulegur talsmaður skal gera sýslumanni grein fyrir aðstoð sinni hvenær sem hann krefst þess.

Hinn fatlaði einstaklingur getur hvenær sem er afturkallað umboð persónulegs talsmanns og skal sýslumaður aðstoða hann við það óski hann eftir því. Sýslumaður skal afturkalla umboð persónulegs talsmanns komi fram ósk þess efnis frá öðrum hvorum eða báðum aðilum samkomulagsins. Jafnframt getur sýslumaður afturkallað slíkt umboð ef beiðni berst þar um frá lögráðamanni. Sýslumaður getur einnig afturkallað umboð persónulegs talsmanns telji hann viðkomandi ekki gegna skyldum sínum gagnvart hinum fatlaða einstaklingi eða uppfylli hann ekki lengur skilyrði til að vera persónulegur talsmaður.

Persónulegur talsmanns aðstoðar við að

  • Að gæta réttar síns. Stuðningur við undirbúning upplýstrar ákvörðunar hins fatlaða einstaklings um málefni sín. Aðstoð vegna ákvarðana um þjónustu við hinn fatlaða einstakling.

  • Persónuleg málefni hins fatlaða einstaklings. Stuðningur við undirbúning upplýstrar ákvörðunar, svo sem um meðferð heilbrigðisstarfsmanna, um búsetu, atvinnu, tómstundir o.fl.

  • Fylgjast með upplýsingum um fjármál.

  • Að greiða dagleg útgjöld.

Allar ráðstafanir persónulegs talsmanns skulu gerðar í samráði við og með samþykki hins fatlaða einstaklings og einvörðungu í samræmi við vilja og óskir viðkomandi.

Tengt efni

Réttindagæsla fyrir fatlað fólk á island.is
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið
Frétt 2. desember 2024 á vef Stjórnarráðs Íslands um réttindagæslu fyrir fatlað fólk

Lög og reglur

Lög 88/2011 um réttindagæslu fyrir fatlað fólk á vef Alþingis

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15