Fyrirspurn til sýslumanns vegna persónulegs talsmanns
Sýslumenn tóku þann 1. janúar 2025 við umsýslu með samningum sem varða persónulega talsmenn fyrir fatlað fólk. Fatlaður einstaklingur leitar því nú til sýslumanns en ekki Réttindagæslu fyrir fatlað fólk við val á persónulegum talsmanni eða þegar afturkalla þarf umboð viðkomandi.
Samningar sem þegar hafa verið gerðir halda gildi sínu þrátt fyrir flutning verkefnisins yfir til sýslumanns nú um áramótin. Fyrst um sinn og meðan á yfirfærslu verkefnisins stendur, má búast við einhverjum töfum á afgreiðslu og samþykkt nýrra samninga. Hægt er að fylla út eyðublað hér á vefnum til að senda sýslumanni fyrirspurn og fá upplýsingar vegna samninga um persónulega talsmenn.
Fyrirspurn til sýslumanns vegna persónulegs talsmanns
Hægt er að senda hér inn fyrirspurn til sýslumanns, til að fá upplýsingar vegna samninga um persónulega talsmenn fyrir fatlað fólk. Sýslumaður mun hafa samband við fyrirspyrjanda innan þriggja daga og veita upplýsingar og leiðbeiningar um úrræði og erindi um persónulegan talsmann. Búseta aðila ræður því almennt hvaða sýslumaður tekur við fyrirspurninni.
Þjónustuaðili
Sýslumenn