Nýsköpunarverðlaun hins opinbera
Verðlaunin eru veitt árlega fyrir framúrskarandi árangur á sviði opinberrar nýsköpunar.
Tilnefning til nýsköpunarverðlauna 2025
Hægt er að senda inn tilnefningu hér
Verðlaunahafar

Þrjú verkefni hlutu Nýsköpunarverðlaun hins opinbera árið 2024 sem veitt eru fyrir framúrskarandi árangur á sviði nýsköpunar í opinberri starfsemi. Alls bárust vel á fjórða tug tilnefninga en dómnefnd skipuð fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Sýslumenn
Sýslumenn hlutu viðurkenningu fyrir brautryðjendastarf við sjálfvirknivæðingu opinberrar þjónustu, og sérstaklega stafræna málsmeðferð dánarbúa. Alls voru 92% útgefinna dánarvottorða í lok árs 2023 stafræn, en voru 26% í byrjun sama árs. Sýslumenn fá helstu lykilupplýsingar á borð við skattframtöl og ökutækjaeignir sjálfkrafa í ferlinu, aðstandendur geta fyllt allar yfirlýsingar og umsóknir út stafrænt, sem hefur gert umsóknarferlið einfaldara og fljótlegra.

Reykjavíkurborg og Vestmannaeyjabær
Reykjavíkurborg og Vestmannaeyjabær hlutu sameiginlega viðurkenningu fyrir verkefni varðandi útboð og innleiðingu á velferðartæknilausn sem hefur gert heilbrigðis- og félagsþjónustuveitendum á velferðarsviði sveitarfélaganna kleift að stórefla upplýsingamiðlun sín á milli og hámarka skilvirkni við veitingu fjölbreyttrar þjónustu í heimahúsum. Þjónustunotendur hafa einnig öðlast betri yfirsýn á skipulagi sinnar þjónustu.

Árborg
Þá fékk sveitarfélagið Árborg sérstaka viðurkenningu fyrir framfaradrifinn metnað á sviði umbóta og stafrænnar þjónustu sveitarfélagsins. Í erfiðu árferði hefur Árborg lyft grettistaki í stafrænni umbreytingu með fjölbreyttum stafrænum umbótaverkefnum sem hafa skilað bættri yfirsýn stjórnenda á verkefnin og dregið úr álagi starfseminnar.

Nýsköpunardagurinn er framundan
Nýsköpunarverðlaun hins opinbera eru veitt í aðdraganda Nýsköpunardags hins opinbera sem fer fram 15. maí næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica. Þar verður fjöldi erinda með sérstaka áherslu á gervigreind og hvernig hún getur hjálpað við að leysa ýmsar áskoranir í rekstri og þjónustu. Frekari upplýsingar um Nýsköpunardaginn má finna hér:
NHO24: Opinber hagnýting á gervigreind | Ísland.is (island.is)
Nýsköpunarverðlaun 2018
Verkefnið ALFA – rafrænt lyfjaumsjónarkerfi hlaut nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu 2018 sem veitt voru á ráðstefnu föstudaginn 8. júní 2018. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, afhenti verðlaunin. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Betri opinber þjónusta með öflugu samstarfi og nýtingu stafrænna lausna“.
Alls voru 33 verkefni tilnefnd til nýsköpunarverðlaunanna.
Verkefnið sem bar sigur úr býtum er samvinnuverkefni Öldrunarheimila Akureyrar, Akureyrarkaupstaðar, Lyfjavers ehf. og Þulu – Norræns hugvits. ALFA er stafræn lausn á lyfjaumsjónarkerfi sem þróuð var í þeim tilgangi að einfalda lyfjaskráningu, utanumhald á lyfjalager og samskipti á milli öldrunarheimila og birgja. Verkefnið hefur leitt til mikillar hagræðingar og umbóta í rekstri öldrunarheimila.
Fjögur verkefni hlutu sérstaka viðurkenningu á ráðstefnunni: Vatnajökulsþjóðgarður fyrir „Sjálfvirk innheimta og aðgangsstýring“; Ísafjarðarbær fyrir „Blábankinn, samfélagsmiðstöð á Þingeyri“; Kópavogsbær fyrir „Social Progress Portrait; Mælikvarði á félagslegar framfarir í Kópavogi og MÆLKÓ“ og Skútustaðahreppur fyrir „Umbótaáætlun í fráveitumálum í Mývatnssveit“.
Nýsköpunarverðlaun 2015
Geðheilsustöðin í Breiðholti hlaut nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu, sem afhent voru 23. janúar 2015.
Verkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem bar sigur úr býtum nefnist „Geðheilsustöðin í Breiðholti“. Með Geðheilsustöðinni er ætlunin að veita fullorðnum einstaklingum sem greinst hafa með geðraskanir heildræna þjónustu og draga með því m.a. úr innlögnum á geðsvið Landspítalans. Innan Geðheilsustöðvarinnar starfar þverfaglegur hópur fagfólks sem vinnur eftir batahugmyndafræðinni þar sem notendum er hjálpað til að byggja upp betri sjálfsmynd og öðlast aukna vitund um eigið vald og val í lífinu. Í batastýrðri þjónustu er gjarnan nýtt persónuleg reynsla þeirra sem hafa náð bata af geðröskunum og hafa fyrrum notendur þjónustunnar orðið liðveitendur. Verkefnið hefur m.a. leitt til þess að innlögnum frá íbúum í Breiðholti á geðsvið Landspítalans hefur fækkað um 28% frá því að Geðheilsustöðin tók til starfa.
Fimm önnur verkefni fengu sérstakar viðurkenningar fyrir nýsköpun. Það voru Hafnarfjarðarkaupstaður fyrir „Áfram: Ný tækifæri í Hafnarfirði“, Reykjavíkurborg fyrir „Næringarútreiknaðir matseðlar, örútboð og matarsóun“, Langanesbyggð vegna Grunnskólans á Bakkafirði fyrir „Vinnustofur- Fjölbreyttir kennsluhættir og nýsköpun“, Embætti landlæknis og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins fyrir „Veru: Öruggur rafrænn aðgangur að mínum heilbrigðisupplýsingum“ og Seltjarnarnesbær fyrir „Ungmennaráð Seltjarnarness“.
Alls voru 49 verkefni frá 13 stofnunum og 13 sveitarfélögum tilnefnd.
Nýsköpunarverðlaun 2014
Landspítali háskólasjúkrahús-bráðadeild hlaut nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu, sem afhent voru 24. janúar 2014.
Verkefni Landspítala sem bar sigur úr býtum nefnist „Rauntíma árangursvísar á bráðadeild“. Verkefnið felur í sér notkun skjáborðs með árangurs- og gæðavísum sem sýndir eru í rauntíma sem liður í gæða- og öryggisstjórnun á bráðamóttöku. Árangurs- og gæðavísarnir gefa starfsmönnum ómetanlegar upplýsingar yfir sólarhringinn og gera stjórnendum kleift að bregðast við álagspunktum með markvissari hætti en áður og fylgjast með gæðum í þjónustunni á mismunandi þjónustustigum. Mælarnir hafa vakið mikla athygli, bæði innanlands sem og meðal erlendra ráðgjafa sem komið hafa á Landspítala, þar sem þetta þykir einstakt.
Fjögur önnur verkefni fengu sérstakar viðurkenningar fyrir nýsköpun. Það voru Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fyrir „Að halda glugganum opnum“, Dalvíkurbyggð fyrir „Söguskjóður“, Reykjanesbær fyrir „Framtíðarsýn í menntamálum“, Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga fyrir „Þjónusta við blinda og sjónskerta“.
Alls voru 39 verkefni frá 20 stofnunum og 10 sveitarfélögum tilnefnd.
Nýsköpunarverðlaun 2012
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra hlaut nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu sem veitt voru 30. október 2012.
Verðlaunin til Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra voru veitt vegna verkefnisins “SignWiki”. Verkefnið er upplýsingakerfi og þekkingarbrunnur þar sem táknmálsorðabók og táknmálsnámi er miðlað í tölvur, spjaldtölvur og síma. Þetta er ný nálgun sem byggir á opinni og virkri þátttöku þar sem málsamfélagið og áhugafólk um táknmál eru þátttakendur og leggja til námsefni og tákn. SignWiki nýtist sem orðabók, til kennslu og í samskiptum við heyrnarlausa, fyrir almenning og til rannsókna og hefur gjörbreytt aðgengi að táknmáli og miðlun þess.
Fimm önnur verkefni fengu sérstakar viðurkenningar fyrir nýsköpun. Það voru Blindrabóksafn Íslands fyrir “Librodigital”, Orkustofnun fyrir “Varmadæluvefur”, Öldrunarheimili Akureyrar fyrir “Hænsnahöllin”, Reykjavíkurborg fyrir “Betri Reykjavík” og Sjúkratryggingar Íslands fyrir “Réttindagátt - gagnagátt”.
Alls voru 62 verkefni frá 31 stofnun og 11 sveitarfélögum tilnefnd.
Nýsköpunarverðlaun 2011
Lögreglustjórinn á Hvolsvelli og almannavarnanefnd hlutu Nýsköpunarverðlaun í opinberum rekstri sem voru veitt 3. nóvember 2011. Verkefnið “Skipulag rýminga vegna jökulhlaupa sem fylgja eldgosum í Kötlu og Eyjafjallajökli. Samstarf íbúa og almannavarnaryfirvalda“ fól í sér að gera viðbúnaðar- og rýmingaráætlun í samstarfi íbúa og almannavarnaryfirvalda vegna yfirvofandi náttúruváar af völdum eldsumbrota í Kötlu og Eyjafjallajökli.
Þrjú önnur verkefni fengu sérstakar viðurkenningar fyrir nýsköpun. Það voru Landmælingar Íslands fyrir “Örnefni á vefnum: Nýjar aðferðir við söfnun og miðlun”, Blindrabókasafn Íslands fyrir “Yfirfærslu bókakosts bókasafnsins yfir á stafrænt form” og Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fyrir “Notkun samfélagsmiðla (Facebook og Twitter) á sviði löggæslu”.
Alls voru 40 verkefni frá 24 stofnunum tilnefnd.

Þjónustuaðili
Fjársýslan