Sækja má um undanþágu frá reglum um lengd, breidd, hæð, heildarþyngd og ásþunga ökutækis til Samgöngustofu. Ef undanþáguflutningar eru tíðir innan ákveðins svæðis, og í sérstökum tilfellum á milli svæða, er möguleiki að fá langtímaundanþágu.
Kort af svæðum er að finna á heimasíðu Vegagerðar hér en ef kortin eiga ekki við er hægt að óska eftir öðrum svæðum í umsókn.
Hver umsókn er metin hverju sinni en aldrei er gefin langtímaundanþága fyrir flutning sem þarfnast samþykki lögreglu.
Langtímaundanþágur eru með gildistíma frá mánuði í allt að eitt ár. Að öðru leyti gilda sömu reglur og um aðrar undanþágur. Sjá nánar hér.
Lög og reglur
Þjónustuaðili
Samgöngustofa