Erindi og kvartanir vegna heilbrigðisþjónustu
Fylgigögn vegna kvartana
Fylgigögn/skjöl þurfa að vera frumgögn á PDF formi, ljósrituð eða innskönnun í lit og í hárri upplausn svo þau sýni skýrt allar upplýsingar sem koma fram á frumgagninu. Sjá nánari útlistun á gagnaskilum:
Skönnun/ljósritun þarf að vera hornrétt þar sem ljóslestri er beitt við meðferð gagna hjá embættinu. Jafnframt þarf skönnun/ljósritun að ná yfir allt sjáanlegt efni á síðum, einnig ef eitthvað er skrifað á jaðar síðunnar.
Allar síður þurfa að fylgja hverju skjali, jafnvel þótt aðeins sé vísað/vitnað í hluta þeirra.
Blaðsíður þurfa að vera merktar með raðnúmeri. Ef frumgögn eru ekki með síðunúmerum, þarf að merkja þau með raðnúmeri og sjá til þess að þau séu í réttri röð.
Meðfylgjandi sjúkraskrá þarf að rökstyðja umkvörtunarefni og eingöngu er verið að óska eftir sjúkragögnum fyrir það tímabil sem kvörtun nær til. Sjá nánari leiðbeiningar varðandi sjúkraskrár.
Óskýrum/ólæsilegum/ófullkomnum afritum gagna verður hafnað nema sendandi rökstyðji að betri afrit sé ekki hægt að útvega.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis