Höfðaborgarsamningurinn (IDERA)
Ísland er aðili að Höfðaborgarsamningnum um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði ásamt bókun um búnað loftfara.
Óafturkræf heimild til að biðja um afskráningu og útflutning (IDERA)
Í samningi um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði er kveðið á um heimild skuldara til að gefa út til þriðja aðila heimild til að óska eftir afskráningu loftfars af loftfaraskrá (IDERA).
Skráður eigandi loftfars getur óskað eftir IDERA-skráningu í loftfaraskrá. Skila þarf viðeigandi IDERA-eyðublaði til Samgöngustofu í tvíriti.
Eyðublaðið skal vera undirritað með bleki af skráðum eiganda loftfars.
Samgöngustofa fer yfir beiðni um IDERA-skráningu og ef gögn reynast viðunandi er IDERA skráð í loftfaraskrá Samgöngustofu í tengslum við viðkomandi loftfar.
Ófullnægjandi gögn verða ekki afgreidd og þeim skilað til skráðs eiganda á hans eigin ábyrgð. Ef lögmaður kemur fram fyrir hönd skráðs eiganda mun samskiptum beint til lögmannsins.
Tryggja skal að skráningargögn séu að formi og efni þannig að Samgöngustofa getur viðurkennt.
Staðfesting á fullnægjandi IDERA-skráningu mun afhent þeim sem fær heimild til afskráningar á grundvelli hennar eða lögmanni sem kemur fram fyrir hans hönd.
Gjald er tekið fyrir IDERA-skráningu samkvæmt gjaldskrá Samgöngustofu.
Afturköllun IDERA
IDERA-skráning hjá Samgöngustofu verður eingöngu afmáð úr loftfaraskrá gegn skriflegu samþykki þess sem hefur heimild til afskráningar samkvæmt skráðu IDERA.
Lög og reglur
Þjónustuaðili
Samgöngustofa