Hjúkrunarheimili og dagdvöl aldraðra
Gjaldskrá fyrir dagdvöl aldraðra á vegum aðila sem eru án samnings um verð
Ný gjaldskrá hefur tekið gildi fyrir þjónustu dagdvalarstofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2025 og eru án samnings um verð.
Gjaldskráin tekur til daggjalda fyrir þjónustu við sjúkratryggða einstaklinga í dagdvalarrýmum á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2025 og eru án samnings við Sjúkratryggingar.
Upphæð greiðsluþátttöku notenda þjónustu dagdvalar kemur fram í reglugerð um dagdvöl aldraðra með síðari breytingum.
Í gjaldskránni eru tilgreind verð og fjöldi rýma sem ákvarðar umfang þjónustunnar sem greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga tekur til. Gjaldskráin gildir frá og með 1. janúar 2025.
Samningar um þjónustu hjúkrunarheimila
Sjúkratryggingar, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir framlengingu á samningum um þjónustu hjúkrunarheimila 31. mars 2025. Þeir samningarnir tóku gildi 1. janúar 2020 og eru nú framlengdir til 31. maí 2025 með möguleika á sjálfvirkri framlengingu til 31. mars 2026 ef samningsaðilar hafa undirritað sameiginlega yfirlýsingu varðandi tiltekin verkefni sem aðilar eru sammála um að vinna í sameiningu. Í apríl 2022 voru samningarnir framlengdir um 3 ár eða til 31. mars 2025 (sjá link fyrir neðan). Samið er við hvert hjúkrunarheimili fyrir sig og eru samningarnir samhljóða. Meðan unnið var að langtímaframlengingu samninga sem tóku gildi í apríl 2022 voru gerðar tvær skammtímaframlengingar.

Þjónustuaðili
Sjúkratryggingar