Heilsueflandi framhaldsskóli
Stefnumótun og rannsóknir
Heilsuefling og forvarnir í stefnumótun
Nálgunin býður upp á að stefna skólans innihaldi forvarnir og heilsueflingu sem gerir framhaldsskólum kleift að marka sér skýra stefnu, skerpa á aðgerðaráætlunum og forvörnum og jafnframt mynda á hagnýtan hátt skýran ramma utan um þennan almenna málaflokk.
Nálgunin var þróuð í samráði við menntamálaráðuneytið, velferðarráðuneytið og Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF).
Viðmiðunarlistar eru þróaðir af stýrihóp sem tekur faglegt tillit til þess sem starfið felur í sér, og eru jafnframt að hluta til unnir í samvinnu við skólana vegna umhverfis, aðstæðna og áherslna þeirra og hafa verið rýndir af stjórnendum í framhaldsskólum.
Allir framhaldsskólar taka þátt og eru þeir mislangt á veg komnir, en forrystuskóli starfsins er Flensborgarskólinn í Hafnarfirði.
Tengt efni
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis