Fara beint í efnið

Dvalarleyfi af mannúðarástæðum

Réttindi og skyldur

Dvalarleyfi af mannúðarástæðum er að hámarki veitt til eins árs.

Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.

Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.

Réttur til fjölskyldusameiningar

Dvalarleyfi af mannúðarástæðum veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar fyrr en eftir að það hefur verið endurnýjað tvisvar sinnum.

Það má veita undanþágu frá þessu skilyrði ef ríkar sanngirnisástæður mæla með því vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða.

Dvalarleyfi af mannúðarástæðum veitir handhafa rétt til fjölskyldusameiningar við

Réttur til að vinna

Dvalarleyfinu fylgir heimild til að vinna án atvinnuleyfis.

Réttur til endurnýjunar leyfis

Ólíkar reglur gilda um endurnýjun dvalarleyfa af mannúðarástæðum eftir því á hvaða grundvelli leyfin voru veitt.

Mannúðarleyfi í kjölfar umsóknar um vernd

Þú þarft að sækja um endurnýjun dvalarleyfis áður en leyfið þitt rennur út.

Aðeins er heimilt að endurnýja dvalarleyfi á grundvelli mannúðarleyfis, ef upphaflegar forsendur fyrir veitingu leyfisins hafa ekki breyst. Þetta þýðir að við afgreiðslu umsóknar um endurnýjun verður Útlendingastofnun að leggja nýtt mat á forsendur þess að þú fékkst veitt mannúðarleyfi.

Ef skilyrði mannúðarleyfisins eru áfram uppfyllt verður leyfi þitt endurnýjað. Sé það mat stofnunarinnar að skilyrðin séu ekki lengur uppfyllt, færð þú boð í viðtal þar sem þér verður leiðbeint um möguleika þína til að sækja um dvalarleyfi á öðrum grundvelli. Uppfyllir þú skilyrði þess leyfis sem þú sækir um, færðu heimild til að dvelja áfram á Íslandi. Ef þú sækir ekki um annað dvalarleyfi, eða uppfyllir ekki skilyrði þess leyfis sem þú sækir um, færð þú boð í viðtal vegna hugsanlegrar afturköllunar á mannúðarleyfi þínu.

Afturköllun mannúðarleyfis þíns hefur áhrif á heimildir aðstandenda þinna til dvalar á Íslandi, ef þeir eru með dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar við þig.

Þú getur kært ákvörðun um afturköllun mannúðarleyfis til kærunefndar útlendingamála.

Mannúðarleyfi á grundvelli verndar vegna fjöldaflótta

Dvalarleyfi sem gefin voru út á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu verða framlengd um eitt ár með þeim fyrirvara að handhafar þeirra mæti í myndatöku fyrir nýtt dvalarleyfiskort innan fjögurra vikna áður en núverandi dvalarleyfi rennur út.

Dvalarleyfi einstaklinga sem ekki mæta í myndatöku verða ekki framlengd. Lögheimili einstaklinga sem ekki eru lengur búsettir á Íslandi og mæta því ekki í myndatöku verða skráð úr landi 30 dögum eftir að núgildandi leyfi renna út. Vinsamlegast athugið að dvalarleyfi einstaklinga sem búsettir eru á landinu verða framlengd.

Bóka þarf tíma í myndatöku á Útlendingastofnun | Noona. Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta farið í myndatöku á næstu sýsluskrifstofu.

Til að allir komist tímanlega í myndatöku er mikilvægt að hver og einn bóki ekki tíma fyrr en fjórum vikum áður en núgildandi leyfi rennur út. Ef þú nærð ekki að bóka tíma í myndatöku áður en leyfið þitt rennur út skaltu bóka næsta lausa tíma.

Útlendingastofnun mun senda tímanlega áminningu á þau netföng og símanúmer sem skráð eru hjá stofnuninni. Þér er velkomið að senda tölvupóst á utl@utl.is til að tryggja að stofnunin hafi réttar upplýsingar um netfang þitt og símanúmer.

Réttur til ótímabundins dvalarleyfis

Ólíkar reglur gilda um réttinn til ótímabundins dvalarleyfis eftir því á hvaða grundvelli mannúðarleyfið var veitt.

Mannúðarleyfi í kjölfar umsóknar um vernd

Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.

  • Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.

Mannúðarleyfi á grundvelli verndar vegna fjöldaflótta

Fyrstu þrjú árin myndar dvalarleyfi á grundvelli verndar vegna fjöldaflótta ekki grundvöll fyrir ótímabundið dvalarleyfi.

Að þremur árum liðnum er heimilt að veita leyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Að liðnu einu ári með slíkt leyfi, sem er þá fjórða árið frá upphafi, er heimilt að gefa út ótímabundið dvalarleyfi.

  • Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun