Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025, auglýst er samkvæmt ákvæðum reglugerðar.
Leiðbeiningar: - Umsóknir um byggðakvóta fara í gegnum umsóknagátt. Við innskráningu þarf að nota rafræn skilríki útgerðaraðila.
- Niðurstaða umsóknar verður eingöngu birt í pósthólfi umsækjanda inn á island.is Óski umsækjandi eftir bréfi með öðrum leiðum þarf að senda beiðni um slíkt á fiskistofa@fiskistofa.is
- Þegar sótt er um í sveitarfélagi þar sem er vinnsluskylda, þarf yfirlýsing um vinnslu afla að vera undirrituð og staðfest af sveitarfélaginu og henni skilað skilað til Fiskistofu svo úthlutun geti farið fram.
Auglýsingar um byggðakvóta 2024/2025
Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025 og auglýsingu (2) um sérreglur sveitafélaga um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Úthlutað er fyrir:
Drangsnes
Norðurfjörð
Súðavík
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2025.
Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Úthlutað er fyrir:
Breiðdalsvík
Mjóafjörð
Sandgerði
Stöðvarfjörð
Voga
Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl 2025.
Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025 og auglýsingu (1) um sérreglur sveitafélaga um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Úthlutað er fyrir:
Árskógssand
Bakkafjörð
Bíldudal
Blönduós
Brjánslæk
Dalvík
Eyrarbakka
Flateyri
Garð
Greinivík
Grímsey
Hauganes
Hofsós
Hvammstanga
Ísafjörð
Kópasker
Ólafsfjörð
Patreksfjörð
Raufarhöfn
Sauðárkrók
Seyðisfjörð
Siglufjörð
Skagaströnd
Stokkseyri
Suðureyri
Tálknafjörð
Vopnafjörð
Þingeyri
Þorlákshöfn
Þórshöfn
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2025.
Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Úthlutað er fyrir:
Bolungarvík
Djúpavog
Grundarfjörð
Stykkishólm
Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2025.
Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Úthlutað er fyrir:
Hrísey
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2025.
Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Úthlutað er fyrir:
Borgarfjörð Eystri
Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2025.
Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Úthlutað er fyrir:
Hólmavík
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2025.
Árlega ráðstafar matvælaráðuneytið ákveðnum aflaheimildum til stuðnings smærri byggðarlögum:
Sem hafa lent í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og eru háð veiðum eða vinnslu á botnfiski.
Sem hafa orðið fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út, landað afla í viðkomandi byggðarlögum og hafa veruleg áhrif á atvinnuástand í byggðarlögunum.
Ráðherra setur reglur um úthlutun til byggðarlaga og úthlutun til skipa. Sveitarfélög geta óskað eftir sérreglum frá almennu reglunni varðandi úthlutun og þarf ráðherra að samþykkja þær. Gildandi samþykktar sérreglur tiltekinna byggðarlaga er að finna í kafla um byggðakvóta fyrir hvert fiskveiðiár hér á vefnum, eftir því sem við á.
Fiskistofa sér um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa eftir þeim reglum sem gilda hverju sinni.