Fara beint í efnið

Breytt lögheimili barns

Lögheimilisbreyting barna

Samningur foreldra með sameiginlega forsjá um breytt lögheimili barns


Foreldrar með sameiginlega forsjá geta óskað eftir því að flytja lögheimili barna sinna á milli foreldra og færa um leið meðlagsgreiðslur með barninu/börnunum til nýs lögheimilisforeldris.

Ef samkomulag er um flutning lögheimilis og meðlag geta foreldrar sótt um lögheimilisbreytingu með stafrænni umsókn þar sem báðir foreldrar undirrita samninginn rafrænt. Að því loknu fer umsóknin í staðfestingarferli hjá sýslumanni, ef samningurinn er staðfestur er staðfestingin send í pósthólf beggja foreldra á Mínum síðum Ísland.is.

Samningur um lögheimili getur verið varanlegur (til 18 ára aldurs barns) eða tímabundinn, þó ekki til skemmri tíma en 6 mánaða. Að tímabilinu loknu flyst lögheimili barnsins til fyrra horfs á ný.

Ef foreldrar eru ekki með rafræn skilríki er hægt að nálgast samninginn á PDF hér.

Hvaða áhrif hefur breytingin?

Breytingin hefur áhrif á nokkra þætti og er mikilvægt að foreldrar kynni sér vel hvað hún felur í sér. Lögheimilisforeldri hefur ríkari heimildir til ákvarðanatöku um málefni barns en þarf að leitast við að hafa samráð við umgengnisforeldri þegar teknar eru afgerandi ákvarðanir. Lögheimilisforeldrið hefur rétt á að fá meðlag frá hinu foreldrinu og auk þess falla barnabætur og aðrar greiðslur frá hinu opinbera sem fylgja barninu til þess. Barn hefur rétt til að umgangast með reglubundnum hætti það foreldri sem það býr ekki hjá.

Nánar um lögheimili barns og áhrif þess

Er ágreiningur um breytinguna?

Athugið af ef ágreiningur er um breytingu á lögheimili barns er þetta umsóknarferli, sem lýkur með því að báðir foreldrar undirrita samning, ekki ákjósanlegur farvegur. Foreldri sem óskar eftir því að flytja lögheimili barns til sín getur sent rökstudda beiðni á sýslumann.

Beiðni foreldris með sameiginlega forsjá um breytt lögheimili barns

Sýslumaður heldur þá upplýsingafund með foreldrum eftir að beiðni berst. Ef foreldrar eru ekki sammála er málinu vísað í sáttameðferð hjá sýslumanni. Sýslumaður tekur ekki ákvörðun í ágreiningsmáli um lögheimili barns. Foreldri getur ákveðið að höfða dómsmál til að krefjast lögheimilis barns.

Ef þú ert ekki með rafræn skilríki má nálgast umsókn á pdf formi hér

Ertu með frekari spurningar?

Þú getur haft samband við sýslumann í þínu umdæmi fyrir nánari upplýsingar.

Hafa samband við sýslumann í þínu umdæmi

Listi yfir öll eyðublöð hjá sýslumönnum

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15