Forsjá er hægt að breyta með samningi hjá sýslumanni eða með dómi. Samningi eða beiðni um breytingu á forsjá skal leggja fram hjá sýslumanni í því umdæmi sem barnið hefur lögheimili.
Ef þú ert ekki með rafræn skilríki má nálgast umsókn á pdf formi hér
Ágreiningur um breytingu á forsjá
Séu foreldrar ósammála um breytingu á forsjá barns getur annað foreldra lagt fram beiðni um breytingu á forsjá til sýslumanns. Náist ekki samkomulag um breytingu forsjár vísar sýslumaður málinu til sáttameðferðar sem er stýrt af sáttamanni.
Reynist sáttameðferð árangurslaus er gefið út sáttavottorð en foreldri getur leitað til dómstóla til að höfða forsjármál innan 6 mánaða frá útgáfu sáttavottorðsins.
Ef samkomlag næst eða sáttameðferð ber árangur gefur sýslumaður út staðfestingu um breytta forsjá, ef hann telur hana samrýmast hagsmunum barnsins og tilkynnir um breytinguna til Þjóðskrár Íslands.
Þjónustuaðili
Sýslumenn