Vinsamlegast athugið að ef sótt er um í nafni fyrirtækis þarf prókúruhafi að sækja um.
Sækja þarf um leyfi til að brenna bálköst ef bálköstur sem á að brenna er stærri en einn rúmmetri.
Kostnaður
Leyfið kostar 12.000 kr. og skal það greitt inn á reikning embættis sýslumanns í því umdæmi sem brennan á að fara fram.
Umsókn
Í umsókninni þarf meðal annars að koma fram:
fyrirhuguð stærð og staðsetning bálkastar
hvaða efni fyrirhugað er að brenna
hvernig útbreiðsla elds verður takmörkuð
nafn og kennitala ábyrgðarmanns
upplýsingar um áætlaða tímasetningu brennu
upplýsingar um aðgang að slökkvivatni, viðbúnað leyfishafa og viðbragðsáætlun
Fylgigögn
Áður en sótt er um leyfi fyrir brennu þarf að útvega eftirfarandi gögn:
Starfsleyfi eða umsögn heilbrigðisnefndar þar sem fram kemur mat á umhverfislegum þáttum og hugsanlegum áhrifum á nágranna.
Umsögn slökkviliðs þar sem fram kemur mat á útbreiðsluhættu, hvort viðbragðsráðstafanir umsækjanda séu nægjanlegar og hvort þörf sé á öryggisvakt.
Staðfesting vátryggingafélags á ábyrgðartryggingu vegna brennunnar (ef þess er krafist).
Umsóknina þarf að senda til embættis sýslumanns í því umdæmi sem brennan á að fara fram. Sýslumaður fer yfir umsóknina og gefur út leyfisbréf ef öll skilyrði eru uppfyllt.
Hlutverk leyfishafa og ábyrgðarmanns
Leyfishafi og ábyrgðarmaður þurfa báðir að vera á staðnum þegar brennan fer fram.
Leyfishafa ber að tilkynna slökkviliðsstjóra og lögreglu með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara áður en kveikt er í brennunni. Í flestum tilfellum er nóg að gera það með tölvupósti.
Ábyrgðarmaður eða fulltrúi hans á að vera á staðnum á meðan móttaka efnis fyrir bálköstinn stendur yfir.
Ábyrgðarmaður á líka að sjá um hreinsun á brennusvæði fyrsta virka dag eftir að brenna er kulnuð og eigi síðar en á öðrum degi frá því að kveikt er í bálkesti.
Við brennu skal gæta ýtrustu varkárni og gæta þess að valda ekki óþarfa ónæði eða óþægindum.
Eldvarnareftirlit slökkviliðs sér um eftirlit með brennum, hvert í sínu umdæmi.
Kærufrestur
Heimilt er að kæra ákvarðanir sýslumanns til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins innan þriggja mánaða frá móttöku.
Ef þú ert ekki með rafræn skilríki má nálgast umsókn á pdf formi hér
Þjónustuaðili
Sýslumenn