Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Á ég rétt á endurgreiðslu/styrk vegna tannréttinga?

Sjúkratryggingar taka þátt í kostnaði við nauðsynlegar tannréttingar barna og ungmenna.

Skilyrði er að þjónustan sé veitt af sérfræðingi í tannréttingum og réttingin sé gerð með föstum tækjum (spöngum). Eins er skilyrði að meðferð með föstum tækjum hefjist fyrir 21 árs aldur og að viðkomandi hafi ekki áður fengið styrk vegna tannréttinga.

Veittur er 460.000 kr. styrkur ef föst tæki eru sett á a.m.k. 10 fullorðinstennur í hvorum gómi en 310.000 kr. ef föst tæki eru aðeins sett í annan góminn.

Tannlæknir sér um að senda umsókn til Sjúkratrygginga. Styrkurinn fer til tannréttingasérfræðingsins sem lækkar reikninginn þinn sem því nemur uns styrkupphæðin er að fullu greidd - sjá nánari upplýsingar hér.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?