Fara beint í efnið

Er hægt að sækja um styrk fyrir hjálpartækjum til afþreyingar?

Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga í hjálpartækjum sem eru nauðsynleg til leiks og tómstunda barna og/eða skipulagðra íþróttaæfinga barna er 95% í einu tæki á þriggja ára fresti, ef fyrra tæki sem fengið var með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga nýtist ekki lengur. Veita má greiðsluþátttöku oftar ef nauðsynlegt er að teknu tilliti til vaxtar og þroska barnsins.

Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga í hjálpartækjum sem eru nauðsynleg til frístunda og afþreyingar fullorðinna er 80% í einu tæki á fimm ára fresti, ef fyrra tæki sem fengið var með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga nýtist ekki lengur.

Tæki til útivistar og afþreyingar þurfa að öðru leiti að uppfylla sömu skilyrði reglugerðar og tæki til annarra nota

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?