Mannauðstorg ríkisins: Vinnutími og viðvera
Uppgjör orlofs við starfslok
Við starfslok skal gera upp við starfsmann ótekið orlof sem og áunnið en ógjaldfallið orlof. Ekki er heimilt að bæta orlofi aftan við starfslok, enda búið að binda endi á ráðningarsamband starfsmanns og stofnunar.
Við orlofsuppgjör þarf að reikna út áunninn orlofsrétt í vinnuskyldustundum talið.
Vinnuskyldustundirnar eru umreiknaðar yfir í mánuði og sú tímaeining greidd á launum síðasta mánaðar í starfi, þ.e. almennt mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.
Fyrir stéttarfélög sem hafa samið um betri vinnutíma er meðalfjöldi vinnuskyldustunda í mánuði 36 x 52 : 12 = 156
Fyrir stéttarfélög sem ekki hafa samið um betri vinnutíma er meðalfjöldi vinnuskyldustunda í mánuði 40 x 52 : 12 = 173,33
Tengt efni
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Mannauðstorg ríkisins
Ábyrgðaraðilar síðunnar eru Kjara- og mannauðssýsla ríkisins og Mannauðssvið Fjársýslunnar.