Mannauðstorg ríkisins: Vinnutími og viðvera
Ávinnsla veikindaréttar
Við mat á veikindarétti starfsfólks skal telja þann starfstíma sem starfsmaður hefur verið ráðinn til starfa sé hann lengri en einn mánuður. Þá skiptir ekki máli hvert starfshlutfallið hefur verið svo lengi sem starfið er aðalstarf. Sama gildir um starfsmann á tímakaupi teljist starfið aðalstarf.
Auk starfsaldurs hjá núverandi stofnun skal telja starfstíma hjá öðrum stofnunum ríkisins, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meiri hluta af almannafé.
Þó skal ekki meta fyrri þjónustualdur til ávinnslu veikindaréttinda fyrstu þrjá mánuðina nema viðkomandi starfsmaður hafi unnið hjá ríki, sveitarfélögum eða sjálfseignarstofnunum í tólf mánuði eða meira.
Hafi hins vegar orðið rof á starfstíma hans, sem nemur meira en mánuði, hjá fyrrnefndum launagreiðendum á síðustu tólf mánuðum er veikindaréttur hans 14 dagar á fyrstu þremur mánuðum samfelldrar ráðningar hjá ríkisstofnun. Eftir það miðast veikindaréttur hans við samanlagðan starfstíma.
Dæmi: Starfsmaður sem hefur starfað samfellt í 18 ár hjá ríkisstofnun og veikindaréttur hans er 360 dagar. Starfsmaðurinn hættir og er ekki við störf í meira en mánuð og hefur svo störf hjá annarri ríkisstofnun. Starfsmaðurinn veikist svo á fyrsta degi í nýja starfinu. Hér var rof á þjónustualdri hans á síðustu 12 mánuðum og hann á því 14 daga veikindarétt. Ef þessi sami starfsmaður hefði veikst á fjórða mánuði í nýja starfinu ætti hans hins vegar 360 daga rétt.
Dæmi: Starfsmaður starfaði í átta mánuði hjá sveitarfélaginu A og hóf svo beint störf hjá ríkisstofnuninni B og vann þar í 6 mánuði (samtals 14 mánuðir án rofs). Hann ræður sig svo beint til ríkistofnunarinnar A (án rofs). Hann lendir svo í vinnuslysi eftir nokkra daga í starfi hjá A. Í þessu tilviki var ekkert rof á samfelldum vinnutíma hans síðustu 12 mánuði hans svo hann á strax rétt á veikindarétti sem nemur 133 daga veikindarétt miðað við samanlagðan þjónustualdur hans.
Ávinnsla veikindaréttar miðast við eftirfarandi starfstíma:
Starfstími - Fjöldi daga
0-3 mánuði - 14 dagar
Næstu 3 mánuði - 35 dagar
Eftir 6 mánuði - 119 dagar
Eftir 1 ár - 133 dagar
Eftir 7 ár - 175 dagar
Eftir 12 ár - 273 dagar
Eftir 18 ár - 360 dagar
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Mannauðstorg ríkisins
Ábyrgðaraðilar síðunnar eru Kjara- og mannauðssýsla ríkisins og Mannauðssvið Fjársýslunnar.