Félög sækja um stuðninginn til Lands og skógar sem annast umsýslu þessa verkefnis.
Umsóknarfrestur fyrir verkefni árið 2025 er til 13. apríl.
Upplýsingar sem þurfa að fylgja
Á rafrænu eyðublaði þarf að útfylla eftirfarandi:
Nafn og kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang félags og forsvarsmanns eða tengiliðar.
Ræktunarsvæði, staðsetning og landgerð (lýsing ásamt mynd eða korti).
Skipulagsleg staða landsins og verndarákvæði ef einhver eru.
Leyfi landeiganda (afrit af samningi/samkomulagi).
Áætlað umfang, landstærð, fjöldi plantna og plöntutegundir og kostnaðaráætlun.
Forsendur styrkveitingar
Umsóknarfrestur er til 13. apríl 2025 og fyrir 1. maí mun verkefnisstjóri tilkynna umsækjendum um úthlutun vegna 2025.
Félag sem hlýtur styrk gerir samning við Land og skóg fyrir eitt ár í senn. Samningi fylgja leiðbeiningar um hvar nálgast má plönturnar. Forsendur eru:
Að umsækjandi hafi leyfi landeiganda fyrir framkvæmdinni og að hún stangist ekki á við verndarákvæði samkvæmt landslögum eða skipulagsáætlun viðkomandi sveitarfélags.
Landið sé friðað fyrir beit.
Gerður verður samningur við styrkþega um viðkomandi skógræktarverkefni. Hann er byggður á upplýsingum umsækjanda, einfaldri ræktunaráætlun og kostnaðaráætlun.
Forgangur að styrkjum
Forgangsröðun mótast einkum af ræktunaröryggi, aðallega hvað varðar beitarfriðun og örugga getu félaga til að koma hlutum í verk.
Land
Stærri lönd sem eru skipulögð til skógræktar og friðuð fyrir beit eða svæði innan slíkra heilda, t.d. svæði innan skógræktarsvæða sveitarfélaga eða annarra aðila.
Stærri einkalönd sem eru friðuð fyrir beit.
Minni svæði (minnst 1 hektari) sem eru friðuð fyrir beit.
Svæði sem ekki eru friðuð fyrir beit koma ekki til greina.
Frístundalóðir koma ekki til greina.
Félög
Formleg félög sem ekki hafa aðgang að annarri fjármögnun til skógræktar, til dæmis góðgerðarfélög og áhugamannasamtök.
Óformleg félög sem ekki hafa aðgang að annarri fjármögnun til skógræktar, til dæmis vinnustaðafélög.
Félög sem hafa aðgang að annarri fjármögnun til skógræktar, til dæmis skógræktarfélög.
Fyrirtæki og opinberar stofnanir eða félög (hf., ehf., sf., ohf.) koma ekki til greina.
Kröfur til styrkþega
Fyrir 15. október skulu styrkþegar hafa skilað framkvæmdaskýrslu á þar til gerðu eyðublaði ásamt útlínum hins nýja skógar, hnituðum með sérstöku appi eða teiknuðum á loftmynd.
Bökkum undan skógarplöntum ber að skila til baka á afhendingarstað sem fyrst eftir gróðursetningu.

Þjónustuaðili
Land og skógur