Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Undirskriftasafnanir og persónuvernd

Söfnun undirskrifta á Netinu telst vera vinnsla persónuupplýsinga sem fellur undir gildissvið persónuverndarlaga. Þar af leiðandi þarf að fylgja öllum ákvæðum persónuverndarlaganna, svo sem um heimildir til vinnslu og fræðslu gagnvart þeim sem skrifa undir.

Söfnun undirskrifta á pappír getur einnig talist vera vinnsla persónuupplýsinga sem fellur undir gildissvið persónuverndarlaganna að því gefnu að undirskriftirnar séu varðveittar í skipulagðri skrá.

Heimild fyrir vinnslu og meginreglur persónuverndarlaga

Eftir sem áður þarf svokallaða heimild fyrir slíkri vinnslu persónuupplýsinga. Sú heimild sem kemur einkum til greina er samþykki þess sem skrifar undir.

Auk heimildar verður vinnslan að fullnægja meginreglum laganna, þar á meðal að persónuupplýsingar séu fengnar í skýrt tilgreindum, lögmætum og málefnalegum tilgangi og ekki unnar frekar í öðrum og ósamrýmanlegum tilgangi.

Þá ber ábyrgðaraðila (það er sá sem ákveður tilgang og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga) að veita hinum skráða fræðslu um vinnsluna, þar á meðal um tilgang hennar og hvert stendur til að miðla undirskriftunum.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820