Sýklalyf og sýklalyfjaónæmi
Aðgerðir gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis
Aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda gegn sýklalyfjaónæmi
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að styrkja enn frekar þverfaglega samvinnu í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi hérlendis. Haustið 2022 var skipaður starfshópur sem hafði það hlutverk að vinna að aðgerðum til að hindra útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Starfshópurinn skilaði tillögum að aðgerðaáætlun í byrjun árs 2024, og í ágúst sama ár undirrituðu Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra formlega aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi. Áætlunin nær yfir tímabilið 2025–2029 og felur í sér sex aðgerðir ásamt kostnaðarmati á framkvæmd þeirra 24 markmiða og 75 forgangsraðaðra verkefna.
EU-JAMRAI 2 - Samstarfsverkefni ESB/EES ríkja um aðgerðir gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis
Ísland tekur þátt í verkefninu EU-JAMRAI 2, sem er sameiginlegt átak Evrópuríkja gegn sýklalyfjaónæmi og sýkingum tengdum heilbrigðisþjónustu (e. European Joint Action on Antimicrobial Resistance and Healthcare-Associated Infections). Þetta samstarfsverkefni byggir á velgengni fyrra verkefnis, EU-JAMRAI 1, sem var starfrækt árin 2017 til 2021.
Markmið EU-JAMRAI 2 er að vinna gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis með heildstæðri nálgun í anda Einnar heilsu (e. One Health). Alls taka þátt 120 samstarfsaðilar frá 30 ríkjum, þar af 27 aðildarríki ESB, ásamt Íslandi, Noregi og Úkraínu. Stefnan er að gera Evrópu að fyrirmynd í Einnar heilsu aðgerðum gegn sýklalyfjaónæmi. Lögð er áhersla á að þátttökuríki styrki aðgerðaráætlanir sínar gegn sýklalyfjaónæmi og veitir EU JAMRAI 2 stuðning til þess.
Verkefnið inniheldur fjölbreyttar aðgerðir, meðal annars:
Eflingu sýklalyfjagæslu fyrir fólk, dýr og umhverfi.
Styrkingu sýkingavarna.
Bætt aðgengi að mikilvægum sýklalyfjum.
Aukin vöktun á sýklalyfjaónæmi með heildstæðri nálgun Einnar heilsu.
Sérstök áhersla er lögð á vitundarvakningu og fræðslu til almennings og heilbrigðisstarfsfólks um sýklalyfjaónæmi.
Evrópustofnanir, svo sem Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC) og Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA), ásamt alþjóðastofnunum eins og WHO, WOAH, OECD, UNEP og FAO, leggja fram sérfræðiþekkingu og samræma aðgerðir við önnur verkefni. Jafnframt hefur fagfólk í heilbrigðisþjónustu fólks og dýra, sem og fulltrúar sjúklinga, mikilvæga aðkomu að verkefninu.
Sóttvarnalæknir leiðir þátttöku Íslands í EU-JAMRAI 2, í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið, Matvælastofnun og Umhverfisstofnun, í anda Einnar heilsu. Sérstök áhersla er lögð á að samræma verkefnið við landsáætlun Íslands um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi til að tryggja sem bestan árangur hérlendis.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis