Fara beint í efnið

Senda rafræna staðfestingu á starfstímabili

Senda rafræna staðfestingu á starfstímabili

Réttur til atvinnuleysisbóta er reiknaður eftir starfstímabili og starfshlutfalli síðustu 12 mánaða áður en sótt er um.

Staðfesting

Atvinnurekendur þurfa að fylla út staðfestingu á starfstímabili og senda rafrænt í gegnum Mínar síður atvinnurekanda. Þar þarf að skrá:

  • starfstímabil einstaklings síðustu þriggja ára

  • starfshlutfall og hlé í starfi ef það á við

  • ástæðu starfsloka

  • ótekið orlof við starfslok

  • upplýsingar um greiðslur vegna starfsloka

  • hvaða stéttarfélag og lífeyrissjóð var greitt í

Nánar:

Þegar atvinnurekandi er komin inná Mínar síður þarf að smella á Staðfesting starfstímabila á forsíðu. Athugið að viðkomandi þarf að vera prókúruhafi eða með umboð. Einstaklingur sem þarf að staðfesta starfstímabil fyrir þarf að hafa sent inn umsókn um atvinnuleysisbætur.

Senda rafræna staðfestingu á starfstímabili

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun