Fara beint í efnið

Auglýst störf hjá Vinnumálastofnun

EURES - Evrópsk vinnumiðlun

EURES (European Employment Services) er samstarfsvettvangur opinberra vinnumiðlana milli ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu og er starfrækt í 31 landi í Evrópu. EURES var sett á fót árið 1994 af framkvæmdarstjórn ESB sem hefur yfirumsjón með starfseminni.

Markmið

Markmið EURES er að stuðla að auknum hreyfanleika vinnandi fólks á milli landa og bregðast við staðbundnum sveiflum á vinnumarkaði. Um 900 EURES ráðgjafar eru starfandi í Evrópu og miðla þeir upplýsingum um starfsemi EURES.

Vefgáttin

Haldið er úti öflugri vefgátt sem veitir upplýsingar um allt er viðkemur starfsemi EURES í Evrópu auk þess sem flest lönd halda einnig úti sínum eigin heimasíðum. Á Íslandi má nálgast upplýsingar á heimasíðunni með því að skoða vefgátt EURES sem er aðgengileg á 26 tungumálum, þar með talið íslensku.

Báðar heimasíður veita upplýsingar um störf í boði erlendis, auk þess sem þar má finna góð ráð fyrir atvinnuleitendur sem vilja komast út á erlendan vinnumarkað. Vefgátt EURES veitir upplýsingar um starfs- og lífsskilyrði og ástandið á vinnumarkaði í hverju landi fyrir sig auk þess að miðla upplýsingum um alla viðburði EURES í Evrópu. Þar er einnig hægt að fá upplýsingar um starfandi EURES ráðgjafa í hverju landi og er jafnframt boðið upp á netspjall við ráðgjafa í ákveðnum löndum.

Hægt að panta viðtal eða senda fyrirspurn á netfangið: eures@vmst.is.

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun