Upplýsingar fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt til Alþingis
27. apríl 2022
Lög um veitingu ríkisborgararéttar hafa verið samþykkt á Alþingi.
Alþingi hefur samþykkt lög um veitingu ríkisborgararéttar og tóku þau gildi 23. apríl síðastliðinn.
Útlendingastofnun útbýr nú ríkisfangsbréf fyrir þá umsækjendur sem fengu veittan íslenskan ríkisborgararétt og ættu þau að hafa borist Þjóðskrá Íslands í byrjun næstu viku. Liðið geta nokkrir dagar þar til Þjóðskrá hefur skráð umsækjendurna með íslenskt ríkisfang í þjóðskrárkerfið en fyrst þá geta þeir sótt um íslenskt vegabréf. Sótt er um vegabréf á sýsluskrifstofum um land allt.
Alþingi sendir út synjunarbréf til þeirra sem ekki var veitt íslenskt ríkisfang. Ákvörðun um veitingu var alfarið í höndum Alþingis og getur Útlendingastofnun ekki svarað því hvers vegna tilteknum umsækjanda var ekki veittur íslenskur ríkisborgararéttur.