Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Framlenging dvalarleyfa á grundvelli verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu 

6. febrúar 2025

Upplýsingar fyrir handhafa 

flags

Ákveðið hefur verið að framlengja beitingu 44. greinar útlendingalaga og því verða dvalarleyfi á grundvelli verndar vegna fjöldaflótta framlengd um eitt ár. 

Handhafar mannúðarleyfa á grundvelli sameiginlegrar verndar eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér eftirfarandi upplýsingar: 

  • Dvalarleyfi allra einstaklinga sem skráðir eru með lögheimili á Íslandi verða framlengd. 

  • Einstaklingar þurfa ekki að mæta í myndatöku til að fá dvalarleyfi framlengt. 

    • Hafir þú þegar bókað tíma í myndatöku biðjum við þig vinsamlegast um að afbóka tímann á noona.is. 

  • Dvalarleyfishafar munu fá SMS skilaboð þar sem fram kemur hvert og hvenær þau geta sótt ný dvalarleyfiskort. 

    • Ef kort eru ekki sótt innan þess tíma sem tilgreindur er í SMS skilaboðunum, verður litið á það sem tilkynningu um að fólk hafi flutt frá landinu. Einstaklingar sem ekki sækja kort verða skráðir úr landi. 

    • Ef þú getur ekki sótt dvalarleyfið á uppgefinn stað eða innan frests biðjum við þig að senda tölvupóst á netfangið mot@utl.is 

  • Hafin er vinna við að panta kort fyrir þá sem eiga dvalarleyfi sem runnu út í desember og janúar og munu renna út í febrúar. Fólk í þeim hópi getur átt von á að fá SMS skilaboð um afhendingu dvalarleyfiskorts í þessari viku og þeirri næstu. 

  • Vegna þess mikla fjölda leyfa sem þarf að framlengja á stuttum tíma er viðbúið að það verða ekki öll dvalarleyfiskort tilbúin þegar eldra dvalarleyfi rennur út. 

    • Þurfir þú að fá dvalarleyfiskort afgreitt fyrr, til dæmis vegna fyrirhugaðra ferðalaga erlendis, biðjum við þig að senda tölvupóst á netfangið mot@utl.is þar sem fram kemur nafn og kennitala auk afrits af flugseðli.