Fara beint í efnið
Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Áfram veitt sameiginleg vernd vegna fjöldaflótta frá Úkraínu

29. janúar 2025

Dvalarleyfi verða framlengd um eitt ár

flags

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að framlengja beitingu 44. greinar útlendingalaga um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta frá Úkraínu til og með 2. mars 2027.

Þetta þýðir að eftirtaldir einstaklingar, sem koma til Íslands frá Úkraínu, munu áfram eiga rétt á sameiginlegri vernd vegna fjöldaflótta:

  1. úkraínskir ríkisborgarar, sem búsettir voru í Úkraínu 24. febrúar 2022,

  2. einstaklingar sem nutu alþjóðlegrar verndar, viðbótarverndar eða voru handhafar dvalarleyfis af mannúðarástæðum í Úkraínu 24. febrúar 2022,

  3. fjölskyldumeðlimir þeirra sem liðir 1 og 2 ná til, burtséð frá því hvort viðkomandi fjölskyldumeðlimir eru þriðja ríkis borgarar og gætu með öruggum hætti horfið aftur til upprunaríkis. Með fjölskyldumeðlimum er átt við:

    • maka eða sambúðarmaka, sem var hluti af viðkomandi fjölskyldu 24. febrúar 2022;

    • börn og stjúpbörn undir 18 ára;

    • aðra nána ættingja sem eru að hluta eða alfarið háð einstaklingum sem liðir 1 og 2 ná til.

Framlenging dvalarleyfa

Dvalarleyfi á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta, sem þegar hafa verið gefin út, verða framlengd um eitt ár.

Til stendur að afnema kröfu um að einstaklingar þurfi að mæta í myndatöku fyrir framlengingu dvalarleyfis. Vinna við tæknilega útfærslu þess að endurnota eldri myndir er á lokametrunum. Vinsamlegast bókið því ekki tíma í myndatöku.

Unnið er að framlengingu dvalarleyfa sem renna út í janúar og febrúar. Haft verður samband ef þörf er á því að einstaklingar úr þeim hópi mæti í myndatöku.

Nánari leiðbeiningar varðandi framlengingu leyfa og útgáfu nýrra dvalarleyfiskorta verða birtar á heimasíðunni á næstu dögum.