Mikilvægar breytingar á úrræði greiðsluaðlögunar
20. mars 2024
Breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga taka gildi 1. apríl næstkomandi.
Umboðsmaður skuldara (UMS) annast framkvæmd greiðsluaðlögunar sem er mikilvægt úrræði fyrir einstaklinga í verulegum greiðsluerfiðleikum og gerir þeim kleift að leita frjálsra samninga við kröfuhafa með milligöngu UMS. Markmiðið með greiðsluaðlögun er að ná jafnvægi milli skulda og greiðslugetu og tilgangur breytinganna er bæði að auka skilvirkni úrræðisins og mæta betur þörfum umsækjenda.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Betri heimildir gagnvart fasteignaeigendum
UMS getur nú lagt til við kröfuhafa að samþykkja gjaldfrest af veðkröfum ef skuldari getur ekki greitt raunafborganir veðlána við ákveðnar aðstæður og heimild til að leggja til lægri afborganir veðlána er rýmkuð. Breytt greiðslufyrirkomulag getur alla jafna varað í allt að eitt ár. Markmiðið er að mæta sérstökum aðstæðum á borð við hátt vaxtastig eða tímabundnum aðstæðum eins og tekjuleysi. Þá geta umsækjendur leitað eftir leiðréttingu á yfirveðsetningu fasteignar hjá UMS á meðan samningaviðræður við kröfuhafa standa yfir. Verður þannig hægt að óska eftir lækkun á veðsetningu svo að hún miðist við markaðsverðmæti fasteignar, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Heildstæðara úrræði
Til að úrræðið verði heildstæðara verða gerðar ákveðnar breytingar á meðferð krafna sem standa utan greiðsluaðlögunar. Kröfur á borð við virðisaukaskatt, fésektir og meðlagsskuldir geta með þessu orðið hluti af greiðsluáætlun samnings þrátt fyrir að ekki sé heimilt að kveða á um eftirgjöf á þeim. Með þessu móti þurfa einstaklingar ekki að semja sjálfir sérstaklega við hlutaðeigandi kröfuhafa. Þá er sú breyting gerð að virkar kröfur vegna ábyrgðarskuldbindinga á námslánum falla undir úrræðið. Ábyrgðarmenn á námslánum, sem glíma við fjárhagserfiðleika, geta nú leitað heildstæðrar lausnar í gegnum úrræði greiðsluaðlögunar.
Rýmkun á skilyrðum
Skilyrði eru rýmkuð með það að markmiði að fleiri geti leitað greiðsluaðlögunar. Þá geta einstaklingar sem eru ótímabundið búsettir erlendis nú leitað greiðsluaðlögunar vegna íslenskra krafna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Einnig ber að nefna að umsækjendum er nú auðveldað til muna að óska eftir breytingu á samningi um greiðsluaðlögun ef upp koma sérstakar eða ófyrirsjáanlegar aðstæður.
Heimildir Creditinfo takmarkaðar
Óheimilt verður fyrir Creditinfo að skrá upplýsingar um greiðsluaðlögun umsækjanda í vanskilaskrá eða annars konar gagnasafn sem miðlað er. Þá mun fyrirtækið eingöngu geta nýtt upplýsingar um greiðsluaðlögunina í þágu skýrslu um lánshæfi í eitt ár.
Greiðsluaðlögun var fyrst sett á laggirnar árið 2010 og hafa um 8.800 umsóknir borist frá upphafi. Úrræðið hefur margsannað gildi sitt en mikil þörf hefur verið fyrir endurskoðun laganna. UMS fagnar því mjög breytingunum sem byggjast á þeirri reynslu og þekkingu sem orðið hefur til á málaflokknum gegnum árin.