20. janúar 2025
Landeldi í Hvalfirði - 28.000 tonna eldi á ári, Hvalfjarðarsveit
Aurora fiskeldi ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats landeldis í Hvalfirði á 28.000 tonna framleiðslugetu á ársgrundvelli.
Matsáætlunin er aðgengileg á Skipulagsgátt.
Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina eigi síðar en 18. febrúar 2025.
Vakin er athygli á að Aurora fiskeldi ehf. og EFLA munu halda kynningarfund á Hótel Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit þriðjudaginn 4. febrúar n.k kl. 20:00.
Kynning á matsáætlun er hluti af umhverfismatsferli sem er í vinnslu og mikilvægur liður í að hagaðilar og almenningur hafi vettvang til að kynna sér framkvæmdina og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Dagsskrá:
Aðstandendur félagsins munu kynna framkvæmdina
EFLA mun kynna matsáætlun framkvæmdarinnar og helstu áherslur í komandi umhverfismati.
Spurningar og svör
Almenningur og hagaðilar er hvattir til að mæta.