3. mars 2025
Aukið sjókvíaeldi í Arnarfirði á vegum Arnarlax
Arnarlax hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna umhverfismats á auknu sjókvíaeldi í Arnarfirði, en fyrirtækið áformar að auka hámarkslífmassa úr 11.500 tonnum í 16.000 tonn og stækka eldissvæðin úr 5,9 km2 í 29 km2.
Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á Skipulagsgátt.
Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina eigi síðar en 14. apríl 2025.