Fara beint í efnið
Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Störf á sviði stefnumótunar og miðlunar

11. desember 2024

borgartun

Skipulagsstofnun auglýsir eftir verkefnisstjórum til starfa á svið stefnumótunar og miðlunar hjá stofnuninni. Annarsvegar er um að ræða starf verkefnisstjóra stefnumótunar og hinsvegar verkefnisstjóra kynningarmála.

Um er að ræða fjölbreytt verkefni sem krefjast agaðra vinnubragða, drifkrafts, samskiptahæfileika og þekkingar á skipulagsmálum á Íslandi. Viðkomandi þurfa að geta unnið sjálfstætt og leitt verkefnisteymi til árangurs í fjölbreyttum gerðum verkefna.

Verkefnisstjóri á sviði stefnumótunar

Helstu verkefni:

  • Halda utan um vinnu við gerð og framfylgd strandsvæðisskipulags fyrir hönd svæðisráða og raflínuskipulags fyrir hönd raflínunefnda.

  • Aðstoð við gerð og framfylgd landsskipulagsstefnu

  • Halda utan um ýmis verkefni við stefnumótun, leiðbeiningar, útgáfu og kynninga er tengjast hlutverki stofnunarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Réttindi til skipulagsgerðar skv. skipulagslögum er æskileg.

  • Meistarapróf á sviði skipulagsmála er nauðsynlegt.

  • Þekking eða reynsla sem nýtist í starfi, s.s. reynsla af skipulagsgerð og samráði við skipulagsgerð.

  • Þekking á opinberri stjórnsýslu á sviði skipulagsmála.

  • Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.

  • Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.

  • Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.

  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti og góð enskukunnátta er nauðsynleg.

Verkefnisstjóri á sviði miðlunar

Helstu verkefni:

  • Annast þróun á sviði miðlunar og umsjón með vefsíðum Skipulagsstofnunar og samfélagsmiðlum ásamt fréttabréfi.

  • Undirbúningur og framkvæmd viðburða í samstarfi við viðkomandi fagsvið.

  • Undirbúningur og útgáfu leiðbeininga, kynningarefnis og annars efnis á sviði skipulagsmála

  • Miðlun efnis og samskipti við hagsmunaaðila og fjölmiðla í samstarfi við viðkomandi stjórnendur

  • Ýmis verkefni við stefnumótun, leiðbeiningar og miðlun um skipulagsgerð og umhverfismat.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði skipulagsmála.

  • Þekking eða reynsla sem nýtist í starfi.

  • Þekking á opinberri stjórnsýslu á sviði skipulagsmála.

  • Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.

  • Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.

  • Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.

  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti og góð enskukunnátta er nauðsynleg.

Umsóknir

Umsóknarfrestur um bæði störfin er til og með 2. janúar 2025.

Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsóknarform má nálgast á vef Vinnvinn:

Nánari upplýsingar veita Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Margrét Stefánsdóttir (margret@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 16
Föstudaga: 9 til 13

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram