Stafrænt skipulag - textasnið í dálkum fyrir skipulagsákvæði og skilmála
27. janúar 2025
Nú er hægt að nýta ákveðin textasnið til þess að brjóta upp texta skipulagsákvæða og skilmála.
Í skipulagsgreinargerðum eru skipulagsákvæði aðalskipulags og skilmálar deiliskipulags iðulega settir fram í ítarlegum texta sem gjarnan er brotinn upp með millifyrirsögnum, feitletrun o.þ.h.
Í stafrænu aðal- og deiliskipulagi er þessi texti takmarkaður við 3000 stafabil en engu að síður getur verið gott að brjóta hann upp með svipuðum hætti og í greinargerð. Því hefur Skipulagsstofnun ákveðið að leyfa notkun á völdum HTML tögum í ákveðnum eigindadálkum til að gera þetta kleift. Þetta á aðeins við um: - sértæk skipulagsákvæði í dálkinum akvaedi í stafrænu aðalskipulagi - sértæka skilmála í dálkinum skilmalar í stafrænu deiliskipulagi
Eftirfarandi HTML tög eru leyfð:
h1/h2/h3 – fyrirsagnir
p – greinarskil
b – feitletrun
i – skáletrun
u – undirstrikun
ol – tölusettur listi
ul – inndreginn listi
li – texti í ol eða ul lista
Athugið að önnur HTML tög eru ekki leyfileg.
Nánari leiðbeiningar um notkun á HTML tögum eru aðgengilegar í uppfærðum leiðbeiningum
Einnig má finna frekari upplýsingar um tilhögun stafrænna ganga í gagnalýsingum