Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna efnistökusvæðis E124 við Langöldu
9. janúar 2025
Skipulagsstofnun staðfesti 8. janúar 2025 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2024.
Í breytingunni felst enduropnun efnistökusvæðis E124 í Langöldu sem nýtt verður við framkvæmdir við vindorkugarð í Búrfellslundi. Gert er ráð fyrir allt að 250.000 m3 efnistöku fram til ársins 2030.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.